Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2026 13:48 Spánverjinn Roberto Bautista Agut spilar nú keppnisfótbolta og er greinilega öflugr þar líka. @Javier_Panzardo Aðeins rúmum mánuði eftir að hafa lagt tennisspaðann á hilluna hefur Spánverjinn Roberto Bautista Agut snúið aftur í keppnisíþróttir en í þetta sinn á fótboltavellinum.
Þessi 38 ára gamli fyrrverandi tennisleikari sem komst einu sinni í undanúrslit á Wimbledon-mótinu hefur samið við spænska sjöundudeildarliðið CD Els Ibarsos og skoraði tvö mörk í 4-2 sigri í fyrsta leik sínum á undirbúningstímabilinu. Á tennisferli sínum vann Spánverjinn tólf titla í einliðaleik auk þess að sigra í Davis-bikarnum með landsliði sínu árið 2019. Nú er það áskorun hans að ná árangri á fótboltavellinum. „Þetta er nýtt skeið í lífinu sem gleður mig mjög mikið. Megi góða byrjunin halda áfram,“ sagði Bautista Agut á Instagram. FUE TOP 10, CAMPEÓN DE LA DAVIS Y AHORA JUEGA AL FÚTBOL. 👀⚽🇪🇸 ROBERTO BAUTISTA AGUT COLGÓ LA RAQUETA EN JULIO DE 2025. FUE Nº9 DEL MUNDO, GANÓ 12 TÍTULOS ATP Y FUE CAMPEÓN DE LA COPA DAVIS CON ESPAÑA. 🏆🔙 BAUTISTA AGUT JUGÓ EN LAS INFERIORES DEL VILLARREAL HASTA LOS 14… pic.twitter.com/MxOPSsv2H0— ESPN Tenis (@ESPNtenis) August 14, 2026 Bautista Agut snéri þarna aftur í fótboltann eftir að hafa spilað með unglingaliðum Villarreal til 14 ára aldurs, áður en hann ákvað að helga sig tennisferlinum. Els Ibarsos, sem er staðsett um hundrað kílómetra norður af Valencia, sagði að Bautista Agut hefði verið kynntur fyrir stuðningsmönnum áður en hann lék sinn fyrsta leik og að félagið hlakkaði til að fylgjast með honum spila „heilt tímabil“. „Það er orðið opinbert: Roberto Bautista Agut er leikmaður C.D. Els Ibarsos. Takk til allra sem mættu til að styðja okkur og skapa frábæra stemningu á ógleymanlegu kvöldi. Og takk, Roberto, fyrir að sýna þessu verkefni og þessum bæ traust,“ skrifaði félagið á Instagram. Á tennisferli sínum náði Bautista Agut hæst níunda sæti á heimslistanum seint á árinu 2019, meðal annars vegna þess að hann komst í undanúrslit á Wimbledon fyrr á því ári. Roberto Bautista Agut, del tenis al fútbol 🎾⚽️👏🏻El campeón de la Copa Davis 2019 fue canterano del Villarreal hasta los 14 años. Tras una exitosa carrera en el tenis (se retiró en esta temporada), ahora fichó por el CD Els Ibarsos, un club cercano a su ciudad natal (Benlloch).… pic.twitter.com/kPV4xDje1V— Copa Davis (@CopaDavis) August 14, 2026
Spænski boltinn Tennis Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjá meira