Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 22:33 Rodri og Enzo Fernandez í baráttunni um boltann í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í sumar. Getty/Juan Luis Diaz Ensku stórliðin Chelsea og Manchester City eru ekki hætt á markaðnum og nú eru tveir miðjumenn áberandi í fréttum af markaðsmálum þeirra tveggja.
Sky Sports fjallar um miðjumennina Enzo Fernandez frá Argentínu og Rodri frá Spáni. Báðir voru þeir lykilmenn landsliða sinna sem komust í úrslitaleik HM og hafa spilað við frábæran orðstír í ensku úrvalsdeildinni undanfarin ár. Þess vegna kemur mörgum á óvart að verðmat þeirra er mjög ólíkt en Sky Sports reynir að svara spurningunni hvort það sé rétt metið að Enzo Fernandez sé virði tveggja Rodri. Chelsea metur Enzo Fernandez á 120 milljónir punda á meðan Barcelona reynir að kaupa Rodri frá Manchester City fyrir helmingi minna. 🚨🔵 Chelsea have not received any official bid for Enzo Fernández — as their own 5pm UK time ‘deadline’ has now passed.#CFC inform £120m verbal ‘exit clause’ made available to Enzo’s camp for potential suitors at end of May is now off the table. pic.twitter.com/7aZZiq934S— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 14, 2026 Rodri er fjórfaldur meistari ensku úrvalsdeildarinnar og var valinn leikmaður mótsins á HM með Spáni. Samt vonast Barcelona til að fá hann fyrir upphæð í kringum 60 milljónir punda, á meðan Chelsea krefst tvöfalt meira fyrir Fernandez. Framúrskarandi frammistaða Rodri á HM fyrir Spán, eftir tvö meiðslahrjáð tímabil með Manchester City, sannaði að fyrrum handhafi Gullknattarins getur enn spilað á sínu besta. Jafnvel á slitróttu tímabili í ensku úrvalsdeildinni á síðasta ári sýna gögn frá Gradient Sports að Rodri stóð sig betur en Fernandez í fimm af sex lykilmælikvörðum fyrir miðjumenn, þar á meðal sendingum, knattrakstri og tæklingum. Hann er talinn betri leikmaður af langflestum en þegar þú kaupir leikmann á stóra upphæð þá skiptir framtíðin og mögulegar framtíðarsölur einnig gríðarlega miklu máli. Rodri varð þrítugur í byrjun sumars og það setur hann á annan stað á ferlinum en Fernandez, sem er á leið inn í það sem ættu að vera hans bestu ár, enda enn bara 25 ára gamall. 🗣️ "For two central midfielders you're spending an absolute fortune, it better work!" Is Enzo Fernandez worth £120m? 💰 pic.twitter.com/aPAAsCE6AR— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) August 13, 2026 Rodri er óhefðbundinn að því leyti að samkvæmt Transfermarkt náði virði hans hámarki síðar, 28 ára að aldri, þegar hann vann Gullknöttinn. En það hefur síðan lækkað verulega, úr 111,1 milljón punda í 47 milljónir punda. Virði Fernandez á Transfermarkt er aftur á móti í hæstu hæðum og hefur hækkað í 85,5 milljónir punda, og virðist fylgja hinni viðteknu þróun. Með því að bera saman leikmannaprófíla í ensku úrvalsdeildinni og kaupverð á Transfermarkt komst Sky Sports að því að aldur og samningslengd eru tveir stærstu þættirnir sem ákvarða verðmæti leikmanna. Aðrir þættir sem hafa áhrif, samkvæmt greiningu þeirra, eru skammtíma- og langtímaform leikmanna, styrkleiki félagsliðs, metinn með styrkleikaröðun Opta, og nýleg spilun, mæld í spiluðum mínútum. Hér má sjá meira um pælingar Sky Sports. 🚨JUST IN: Chelsea have plenty of midfield options and It is UNLIKELY the will make a signing in that position, especially as Reece James can play there too. [@TheAthleticFC] https://t.co/63yppwAEHW— CFCDaily (@CFCDaily) August 11, 2026
Enski boltinn Manchester City Chelsea FC Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Fleiri fréttir Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Sjá meira