Golf

Óliver kominn í undan­úr­slit á sterku móti

Aron Guðmundsson skrifar
Ólíver Elí er að gera frábæra hluti
Ólíver Elí er að gera frábæra hluti MYND: GSÍ

Ólíver Elí Björnsson, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, er kominn í undanúrslit á sterku unglingamóti og mætir þar ríkjandi Evrópumeistara unglinga, Tao Pemerika.

Greint er frá árangri Ólívers í tilkynningu á vef Golfsambands Íslands en Óliver tekur þessa dagana þátt á The R&A Boys´Amateur Championship mótinu sem er eitt það sterkasta í áhugakylfingaflokki unglinga á heimsvísu. 

Ólíver hefur nú unnið fjóra leiki í röð í holukeppni á Gailes Links vellinum í Skotlandi þar sem að mótið fer nú fram. 

Daninn Christian Photin Hansen tókst ekki að stöðva Ólíver í átta manna úrslitum dagsins . 

Viðureign Ólívers gegn Evrópumeistaranum Tao Pemerika stendur nú yfir og er jöfn eftir sjö holur. 

Í boði er sæti í úrslitaeinvígi morgundagsins gegn sigurvegaranum í viðureign Ludwig Livera og Carlo Roman. 

Mótið á sér rótgróna sögu og hafa þekktir kylfingar á borð við Matt Fitzpatrick, Sergio García, Sir Michael Bonallack og José María Olazábal unnið það. 

Hægt er að fylgjast með gangi mála í viðureign Ólívers og Evrópumeistarans Tao Pemerika hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×