Innlent

Best að vera ekki með stórar yfir­lýsingar

Eiður Þór Árnason skrifar
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir hreyfingu í viðræðum.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, segir hreyfingu í viðræðum. Vísir/Vilhelm

Ágætis gangur er í kjaraviðræðum flugmanna og Icelandair, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Fundað var í húsakynnum ríkissáttasemjara síðustu fjóra daga.

„Menn eru að ná að finna fleti sem er vonandi hægt að slípa saman. Ég vona að þetta gangi áfram og við ætlum svo að hittast aftur í næstu viku. Það er sem betur fer gangur í því,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, í samtali við fréttastofu.

Óhætt sé að segja að samningsaðilum hafi vegnað betur en fyrir sumarfrí en þeir hafa sett sér markmið um að undirrita nýjan kjarasamning fyrir 15. september næstkomandi.

Jón Þór segir fullsnemmt að gefa út hvort hann sé bjartsýnn á að Icelandair og flugmenn nái saman fyrir þann tíma.

„Ég held að það sé best að vera ekki með stórar yfirlýsingar en það er gott að fólk sé að hittast og tala saman og sé í uppbyggilegum samræðum.“

Í júní gáfu fulltrúar FÍA og Icelandair út yfirlýsingu þar sem fram kom að stefnt væri að því að ljúka viðræðum fyrir 15. september og unnið yrði samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara að nýjum kjarasamningi.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×