Körfubolti

Sló tvo leik­menn í and­litið og lét vísa á­horf­anda út

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
DiJonai Carrington lét til sín taka í leiknum gegn Golden State Valkyries, á ýmsan hátt.
DiJonai Carrington lét til sín taka í leiknum gegn Golden State Valkyries, á ýmsan hátt. getty/Matthew Huang

Körfuboltakonan DiJonai Carrington kom mikið við sögu í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries. Hún braut tvisvar gróflega af sér og lét henda áhorfanda út úr húsi.

Í 4. leikhluta kvartaði Carrington við einn dómara leiksins undan áhorfanda sem sat alveg upp við völlinn. Honum var í kjölfarið vísað í burtu en hann sneri aftur í sæti sitt skömmu síðar þar sem kvörtun Carringtons var álitin tilefnislaus.

Ekki liggur fyrir í hverju kvörtun Carrington fólst eða hvað áhorfandinn á að hafa sagt.

Carrington hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Fyrr í vikunni var hún rekin af velli í leik gegn Indiana Fever fyrir að gróft brot á Sophie Cunningham. Eftir leikinn birti Carrington færslu á Instagram þar sem stóð einfaldlega: „FORRÉTTINDI HVÍTRA“. 

Seinna sagðist Carrington ekki hafa verið að gefa í skyn að brottrekstur hennar hefði haft eitthvað með húðlit hennar að gera.

Carrington var áfram í vígahug í leiknum gegn Valkyries. Fyrst sló hún Ceciliu Zandalasini í augað og svo Tiffany Hayes í munninn. Carrington fékk hvorki óíþróttamannslega villu né tæknivillu fyrir brotin en hún náði sér hins vegar í tæknivillu fyrir mótmæli í 3. leikhluta.

Valkyries vann leikinn gegn Sky, 91-71, en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Carrington skoraði þrjú stig í leiknum og tók þrjú fráköst. Hún hitti aðeins úr einu af níu skotum sínum og tapaði boltanum þrisvar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×