Sport

Dag­skráin: Logi Berg­mann með þátt um Ein­vígið á nesinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér má sjá verðlaunahafana og hluta keppenda á Einvíginu á Nesinu 2026.
Hér má sjá verðlaunahafana og hluta keppenda á Einvíginu á Nesinu 2026. Nesklúbburinn

Golfíþróttin var í sviðsljósinu um síðustu helgi og hún fær líka sviðsljósið á sporstöðvunum í kvöld.

Í kvöld verður sýndur þáttur Loga Bergmanns Eiðssonar um góðgerðagolfmótið Einvígið á nesinu sem fór fram í þrítugasta sinn um verslunarmannahelgina. Þátturinn er sýndur á Sýn Sport Ísland og hefst klukkan 20.00.

Venju samkvæmt mættust þar nokkrir af bestu kylfingum landsins en að þessu sinni léku þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki gjaldfrjálsan stuðning vegna andlegrar líðanar og áskorana í daglegu lífi.

Logi Bergmann Eiðsson hefur margoft sett saman þátt um mótið þar sem hann fylgist með gangi mála og talar við kylfingana á meðan keppnin stendur yfir.

Meðal keppenda var Gunnlaugur Árni Sveinsson en hann tók þátt í Opna bandaríska risamótinu, US Open, í sumar og þykir eitt mesta efni sem íslenskt golf hefur eignast.

Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hina hefðbundnu útsláttarkeppni, eða „shoot-out“, þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik.

  • Keppendur í Einvíginu á Nesinu 2026 voru:
  • Aron Snær Júlíusson, GKG
  • Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
  • Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
  • Hlynur Bergsson, GKG
  • Logi Sigurðsson, GS
  • Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG
  • Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
  • Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
  • Skarphéðinn Egill Þórisson, NK
  • Tómas Eiríksson Hjaltested, GR



Fleiri fréttir

Sjá meira


×