Innlent

Mennirnir séu ís­lenskir og tengist fjöl­skyldu­böndum

Tómas Arnar Þorláksson og Sigurgeir Þorkelsson skrifa
Fréttastofu er ekki kunnugt um hvar í Kópavogi andlátið átti sér stað.
Fréttastofu er ekki kunnugt um hvar í Kópavogi andlátið átti sér stað. Vísir/Vilhelm

Rannsókn lögreglu vegna andláts í Kópavogi í liðinni viku miðar vel að sögn E. Agnesar Eide, yfirlögregluþjóns rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem verst allra fregna. Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna málsins. 

Hinn látni var á sjötugsaldri en samkvæmt heimildum fréttastofu tengjast mennirnir fjölskylduböndum og eru báðir Íslendingar.

Maðurinn var handtekinn í síðustu viku, um tveimur til fjórum dögum eftir að andlátið átti sér stað. Vikulangt gæsluvarðhald yfir honum rann út í dag en það hefur nú verið framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna.

Málið þykir óvenjulegt þar sem ekki fréttist af því fyrr en rúmri viku eftir andlátið. Ljóst er að um viðkvæmt mál sé að ræða en lögregla heldur spilunum þétt að sér.

Tómas Arnar Þorláksson hefur fylgt málinu eftir í dag. Í samtali Elísabetar Ingu Sigurðardóttur við hann í kvöldfréttum kom fram að sumir þeirra lögreglumanna sem Tómas ræddi við í dag hefðu einnig fyrst verið að frétta málinu í dag þegar það komst í fréttir.

„Það er ljóst að málið hefur nánast alfarið verið á borði miðlægrar deildar lögreglunnar sem rannsakar nú málið,“ segir Tómas.

„Við vitum að andlátið átti sér stað um helgi fyrir tíu eða ellefu dögum og við vitum að maður var handtekinn tveimur til fjórum dögum síðar í tengslum við málið en það kemur til dæmis ekki fram í tilkynningu lögreglu hvort sá maður hafi stöðu sakbornings í málinu eða hvort um rannsókn á manndrápi sé að ræða.”

Þá hefur fréttastofa enn engar upplýsingar um hvernig andlátið bar að, svo og hvar í Kópavogi atburðurinn átti sér stað eða hvort maðurinn sem nú sætir gæsluvarðhaldi eigi sér fyrri brotasögu. Í gæsluvarðhaldsúrskurði kemur þó fram að maðurinn sé áfram vistaður vegna almannahagsmuna.

„Já, það er nokkuð áhugavert og eitthvað sem vakti strax athygli mína. Við vitum það að maðurinn var handtekinn í síðustu viku, annaðhvort á þriðjudeginum 28. júlí eða miðvikudaginn 29. júlí, og upphaflega úrskurðaður í viku langt varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.“

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×