Innlent

Einn í ­haldi vegna rann­sóknar á mannsláti í Kópa­vogi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Lögreglan rannsakar andlátið.
Lögreglan rannsakar andlátið.

Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á andláti annars karlmanns í Kópavogi.

Karlmaður um sjötugt fannst látinn í heimahúsi í Kópavogi um þarsíðustu helgi.

Maðurinn sem er í haldi var handtekinn í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. ágúst, sem var í dag framlengt um fjórar vikur, til 2. september. Gæsluvarðhaldið er á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.


Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×