Handbolti

Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Átján ára strákarnir okkar eru að sýna öllum á þessu Evrópumóti í Serbíu að þeir ætla sér að spila um verðlaun.
Átján ára strákarnir okkar eru að sýna öllum á þessu Evrópumóti í Serbíu að þeir ætla sér að spila um verðlaun. EHF

Íslenska átján ára landslið karla í handbolta hélt sigurgöngu sinni áfram á Evrópumótinu í Serbíu í dag þegar keppni hófst í milliriðli.

Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og mætti þarna Króatíu, hinu liðinu sem kom með sér tvö stig inn í milliriðilinn. Það bjuggust því flestir við jöfnum leik sem ekki varð þó raunin.

Króatar réðu ekki við stráklinga okkar, ekki frekar en Svartfellingar, Ungverjar eða Svisslendingar. Það er ekki á hverjum degi sem Ísland vinnur Króatíu með átta mörkum í handbolta en það gerðist í 37-29 sigri íslenska liðsins í dag.

Íslenska liðið var sex mörkum yfir í hálfleik, 17-11, komið níu mörkum yfir, 25-16, um miðjan seinni hálfleik og var mest tólf mörkum yfir áður en Króatar löguðu aðeins stöðuna undir lokin.

FH-ingurinn Brynjar Narfi Arndal átti stórleik og skoraði ellefu mörk en  Haukamaðurinn Freyr Aronsson skoraði níu mörk þar af fjögur úr vítum og Valsarinn Logi Finnsson var með fjögur mörk.  FH-ingurinn Ómar Darri Sigurgeirsson skoraði þrjú mörk eins og Eyjamaðurinn Anton Frans Sigurðsson. 

Íslenska liðið vann leikina í riðlinum með meira en tíu mörkum að meðaltali og er nú plús 40 í markatölu eftir fyrstu fjóra leiki sína á mótinu.

Íslensku strákarnir eru líka öruggir inn í átta liða úrslitin með þessum sigri en seinni leikur þeirra í milliriðli er á móti Portúgal á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×