Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2026 10:01 Það eru þrjár leiðir í boði til að koma hinum umdeilda Gianni Infantino frá völdum en hann þarf nú að hafa mikið fyrir því að halda starfi sínu. EPA/ISAAC ESQUIVEL Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn.
Hinn umdeildi forseti FIFA hefur verið undir miklum þrýstingi, bæði innan frá og utan, eftir áætlun sína um að selja hlut í stórmótum sambandsins. Infantino tilkynnti svo að hann væri hættur við umdeilda áætlun sína í kjölfar mikillar andstöðu meðal aðildarsambanda. Infantino er í framhaldinu að reyna að bjarga starfi sínu og stöðu sem forseti FIFA sem var í lítilli hættu fyrir þetta mál en nú blasir við önnur staða. The Telegraph greinir frá því að UEFA hafi gefið Infantino úrslitakosti sem í báðum tilfellum enda með því að hann hætti sem forseti FIFA. En getur UEFA á eigin spýtur svipt Infantino embættinu? Og hvað þarf í raun til að koma valdamesta knattspyrnuleiðtoga heims frá völdum? Eftirfarandi sviðsmyndir eru með þeim fyrirvara að Infantino neiti sjálfur að segja af sér sem forseti FIFA. Vantrauststillaga möguleiki Fyrsta leiðin er vantrauststillaga en það yrði gripið til róttæks og hingað til óséðs verkfæris. View this post on Instagram A post shared by Yahoo Sports (@yahoosports) Árlega er haldið FIFA-þing og þar hafa 211 aðildarsambönd knattspyrnusambandsins tækifæri til að leggja fram svokallaða vantrauststillögu á sitjandi forseta FIFA. Vantrauststillaga myndi þýða að forseti FIFA hefði ekki lengur stuðning aðildarlandanna til að halda áfram. Þing þessa árs var haldið í apríl en það næsta verður haldið í Marokkó í mars 2027. Því mætti freistast til að halda að Infantino sitji öruggur í sessi í að minnsta kosti sjö mánuði í viðbót, en ef UEFA, sem sjálft hefur 55 aðildarlönd, getur safnað saman 43 löndum sem styðja uppreisn gegn Infantino, mun það kalla á aukaþing FIFA. Í samþykktum FIFA kemur skýrt fram að slíkt aukaþing skuli haldið innan þriggja mánaða frá því að beiðnin er lögð fram. Eftir það skal vantrauststillagan lögð fyrir þingið, þar sem öll 211 aðildarsamböndin greiða atkvæði um hvort þau styðji áfram Gianni Infantino eða ekki. Gianni Infantino með góðum vini sínum Donald Trump Bandaríkjaforseta.EPA/SHAWN THEW Ef talan er undir 106 situr Infantino áfram en ef meirihluti landanna hefur ekki lengur traust á sitjandi forseta mun það leiða til nýrra kosninga. Þurfa að draga stuðning til baka Það er einnig hægt að biðja sambönd um að draga stuðning sinn til baka. Fyrir heimsmeistaramótið hafði meirihluti sambandanna lýst því yfir að þau styðji Infantino sem forsetaframbjóðanda á næsta þingi. Talksport greinir frá því að forseti UEFA, Aleksander Ceferin, vilji að öll Evrópulönd, sem hafa lýst yfir stuðningi við Infantino fyrir næstu forsetakosningar, dragi yfirlýsingar sínar til baka. Eiginleg leið Gianni Infantinos í forsetastólinn getur í raun einnig orðið endalok hans eigin valdatíðar tíu árum síðar. Árið 2015 var þáverandi forseti FIFA, Sepp Blatter, beittur viðurlögum af siðanefnd samtakanna eftir að í ljós kom að hann hafði millifært nokkrar milljónir svissneskra franka til þáverandi forseta UEFA, Michel Platini. Báðir aðilar voru síðar sýknaðir í málinu. Siðanefnd FIFA getur blandað sér í málið Siðanefnd FIFA, sem getur hafið mál og beitt leiðtoga í heimsfótboltanum viðurlögum ef þeir brjóta reglur FIFA, getur í raun ekki sjálf vikið sitjandi forseta úr embætti en hún getur gefið út viðurlög sem í reynd gera það ómögulegt að halda áfram sem forseti FIFA eins og átta ára bann Blatters frá allri alþjóðlegri knattspyrnu á sínum tíma. Von UEFA um að siðanefndin gefi út svipað bann á Infantino hangir þó á þynnri þræði. Blaðamaðurinn Jan Jensen, sem hefur fjallað um FIFA og Infantino í meira en áratug, sagði áður við TV 2 Sport í júní að Infantino hefði grafið undan raunverulegum tilgangi nefndarinnar. Lengri og erfiðari leiðin til að koma Infantino frá völdum krefst þess að UEFA finni mótframbjóðanda fyrir FIFA-þingið á næsta ári. Einn af nefndum frambjóðendum, forseti PSG, Nasser Al-Khelaifi, hefur ekki áhuga á starfinu, að því er Tribuna greinir frá. Enn eru engir opinberir mótframbjóðendur gegn Infantino árið 2027 og það er auðvitað stór fyrirstaða ætli menn sér að skipta um mann í forsetastólnum.
FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Íslenski boltinn Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Íslenski boltinn Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Fótbolti Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Fótbolti Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn Stór gulrót í bakgarðshlaupinu í Heiðmörk: „Alveg óskrifað blað“ Sport Hamilton segist ekki hafa beðið um að reka fólk úr liðinu Formúla 1 Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Fótbolti Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Enski boltinn Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Fleiri fréttir Flestir Íslendingar halda með Liverpool Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma Freyr fái fólk til að trúa: „Eitthvað mjög sérstakt að gerast hérna“ Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Veður í Infantino: „Hegðun sem ógnar tilvist leiksins“ Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Peningaflóð til norska sambandsins eftir róður Haalands og félaga FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Vitum hvernig fótbolta við viljum spila og hvað við stöndum fyrir“ Markaveislur og stórsigrar í Evrópudeildinni Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Infantino beðinn um að gefa upp gögn um sölu heimsmeistaramótsins Orri grátlega nálægt því að tryggja stig fyrir Real Sociedad Fanney og Arna sáu um varnarvinnuna í góðum sigri Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands Segir að Messi eigi að vinna Gullknöttinn Sleppir landsleikjunum fyrir brúðkaupsferð Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Klopp velur tvo landsliðshópa með sextán nýja Sextán í bann fyrir nasistakveðjur Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Hundrað marka Messi lét MLS-stjórann heyra það „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Sjá meira