Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar 2. ágúst 2026 10:02 Kristrún Frostadóttir sagði nýlega í bresku hlaðvarpi að ef þjóðin segði já í lok ágúst tæki við aðildarferli sem „soga myndi allt súrefni úr stjórnkerfinu“. Með þessu orðum viðurkenndi hún í raun þá mikilvægu röksemd nei-sinna, að aðildarferlið snúist um annað og meira en að kanna hvað Íslandi standi til boða innan Evrópusambandsins. Væri aðeins um slíkar þreifingar að ræða, nægði að fela fámennri nefnd að vinna skýrslu. Þess í stað lýsir forsætisráðherra verkefni sem myndi leggja meginhluta stjórnsýslunnar undir sig árum saman. Þeir sem kynnt hafa sér stækkunarferli ESB vita að það er ekki hefðbundið samningaferli. Í stækkunarbæklingi Evrópusambandsins er jafnvel bent á að orðið samningaviðræður (negotiations) geti verið villandi. Áherslan er ekki á að semja um regluverk sambandsins heldur að aðlaga umsóknarríkið að því. Umsókn er aðlögun Samkvæmt upplýsingum ESB felst ferlið í því að umsóknarríki samræmir löggjöf sína og stjórnsýslu regluverki sambandsins, kafla fyrir kafla, á 35 málefnasviðum. Jafnframt þarf ríkið að sýna fram á að það geti innleitt og framfylgt megnið af regluverkinu með skilvirkum hætti áður en aðild kemur til greina. Tryggja verður svo að það sem útaf kunni að standa fyrir inngöngu, verði frágengið innan umsaminna tímamarka. Hér er augljóslega um að ræða umfangsmikið, tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni. Lýsing Kristrúnar á að ferlið myndi „soga allt súrefni úr stjórnkerfinu“ er því í fullu samræmi við það sem Evrópusambandið sjálft lýsir. Á meðan slík aðlögun stendur yfir má jafnframt búast við að ýmsar ákvarðanir og fjárfestingar verði settar á bið og að svigrúm Íslands til að gera fríverslunarsamninga við önnur ríki verði takmarkað. Því er mikilvægt að þeir sem greiða atkvæði með aðild geri það af heilum hug og séu reiðubúnir að samþykkja þær skyldur sem henni fylgja. Annars er hætt við að ESB muni líta svo á að um annað bjölluat frá hendi landsins hafi átt sér stað. Og það veit ekki á gott. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Kristrún Frostadóttir sagði nýlega í bresku hlaðvarpi að ef þjóðin segði já í lok ágúst tæki við aðildarferli sem „soga myndi allt súrefni úr stjórnkerfinu“. Með þessu orðum viðurkenndi hún í raun þá mikilvægu röksemd nei-sinna, að aðildarferlið snúist um annað og meira en að kanna hvað Íslandi standi til boða innan Evrópusambandsins. Væri aðeins um slíkar þreifingar að ræða, nægði að fela fámennri nefnd að vinna skýrslu. Þess í stað lýsir forsætisráðherra verkefni sem myndi leggja meginhluta stjórnsýslunnar undir sig árum saman. Þeir sem kynnt hafa sér stækkunarferli ESB vita að það er ekki hefðbundið samningaferli. Í stækkunarbæklingi Evrópusambandsins er jafnvel bent á að orðið samningaviðræður (negotiations) geti verið villandi. Áherslan er ekki á að semja um regluverk sambandsins heldur að aðlaga umsóknarríkið að því. Umsókn er aðlögun Samkvæmt upplýsingum ESB felst ferlið í því að umsóknarríki samræmir löggjöf sína og stjórnsýslu regluverki sambandsins, kafla fyrir kafla, á 35 málefnasviðum. Jafnframt þarf ríkið að sýna fram á að það geti innleitt og framfylgt megnið af regluverkinu með skilvirkum hætti áður en aðild kemur til greina. Tryggja verður svo að það sem útaf kunni að standa fyrir inngöngu, verði frágengið innan umsaminna tímamarka. Hér er augljóslega um að ræða umfangsmikið, tímafrekt og kostnaðarsamt verkefni. Lýsing Kristrúnar á að ferlið myndi „soga allt súrefni úr stjórnkerfinu“ er því í fullu samræmi við það sem Evrópusambandið sjálft lýsir. Á meðan slík aðlögun stendur yfir má jafnframt búast við að ýmsar ákvarðanir og fjárfestingar verði settar á bið og að svigrúm Íslands til að gera fríverslunarsamninga við önnur ríki verði takmarkað. Því er mikilvægt að þeir sem greiða atkvæði með aðild geri það af heilum hug og séu reiðubúnir að samþykkja þær skyldur sem henni fylgja. Annars er hætt við að ESB muni líta svo á að um annað bjölluat frá hendi landsins hafi átt sér stað. Og það veit ekki á gott. Höfundur er framhaldsskólakennari.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar