Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2026 20:32 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir gætu upplifað að spila á HM í fyrsta sinn næsta sumar en útspil Gianni Infantino, forseta FIFA, gæti komið í veg fyrir það. vísir/Anton Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið en stelpurnar okkar eru í dauðafæri að breyta því í vetur. Nú virðist hins vegar vera komið upp mál sem gæti leitt til þess að sá draumur verði ekki að veruleika.
Evrópuþjóðirnar hafa samþykkt að sniðganga heimsmeistaramót FIFA fari svo að Gianni Infantino, forseta FIFA, takist að ná í gegnum plön sín um að selja hlut í mótum Alþjóðaknattspyrnusambandsins til einkafjárfesta. Á fimmtudaginn kusu 55 aðildarsambönd evrópskrar knattspyrnu að sniðganga öll mót FIFA þar til alþjóðaknattspyrnusambandið fellur frá tillögum Infantino. Fyrst mun reyna á afstöðu UEFA þegar heimsmeistaramót kvenna U20 hefst 5. september í Póllandi. Kvennaknattspyrna verður því sú fyrsta sem líður fyrir það ef áætlun Infantino gengur eftir. View this post on Instagram A post shared by Match of the Day (@bbcfootball) „Fyrstu fórnarlömbin verða knattspyrnumót kvenna. Ég held að FIFA hafi ekki íhugað afleiðingar ákvörðunar sinnar,“ sagði Anita Asante, fyrrverandi varnarmaður enska landsliðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið. Pólska knattspyrnusambandið segir að það hefði ekki fengið neinar upplýsingar um að lið hefðu dregið sig úr keppni og að undirbúningur héldi áfram eins og áætlað var. Í október byrja svo undankeppnisleikir fyrir heimsmeistaramót kvenna næsta sumar í Brasilíu þar sem Ísland mætir fyrst Króatíu í tveimur leikjum og svo annaðhvort Portúgal eða Norður-Írlandi í úrslitaeinvígi um laust sæti vinnist undanúrslitaeinvígið. Og heimsmeistaramót kvenna U17 er svo áætlað í október í Marokkó. „Það er það sem er svo svekkjandi fyrir leikmenn. Þú getur ekki tekið tækifærinu til að spila á heimsmeistaramóti sem sjálfsögðum hlut. Ef þetta leysist ekki fyrir undankeppnisleikina gætu áhrifin orðið gríðarleg og leikjadagskráin er þegar þétt,“ sagði Asante. Til að bregðast við sniðgöngu UEFA sagði FIFA á föstudag að „enginn væri að selja fótboltann“ og hélt því fram að samráðsferlið hefði verið „truflað af röngum fréttaflutningi“. Concacaf, sem stjórnar knattspyrnu í Norður- og Mið-Ameríku og hélt heimsmeistaramótið í ár, sagði að 41 aðildarsamband þess hefði „hafnað“ tillögu FIFA. Knattspyrnusamband Asíu hefur gefið út yfirlýsingu þar sem segir að það „standi í samstöðu“ með starfsbræðrum sínum í Evrópu og Norður-, Mið-Ameríku og Karíbahafi. Á sama tíma sagði Carlos Cordeiro, háttsettur ráðgjafi Gianni Infantino, yfirmanns FIFA, af sér og sagði tillöguna vera „slæman samning fyrir fótboltann“ og að hún myndi „veðsetja framtíð fótboltans“. „Ég var mjög ánægð að sjá að UEFA hefði tekið þá afstöðu sem það gerði, og þau voru mjög skýr með fyrirmæli sín og ákveðin í því hvernig þau vilja að þetta fari,“ bætti Asante við.
HM 2027 í Brasilíu FIFA UEFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira