„Hún drap börnin“ Samúel Karl Ólason skrifar 30. júlí 2026 15:29 Lindsay Clancy og Kevin Reddington, lögmaður hennar, í dómsal í Plymoth í Massachusets í gær þegar verið var að spila upptöku af símtali fyrrverandi eiginmanns hennar eftir að hún myrti börn þeirra þrjú. AP/David L. Ryan, Boston Globe Kona sem sökuð er um að hafa myrt þrjú börn sín brast í grát í dómsal í Bandaríkjunum í gær, þegar hún og aðrir í dómsalnum hlustuðu á símtal fyrrverandi eiginmanns hennar til Neyðarlínunnar. Lindsay Clancy er sökuð um að hafa kyrkt fimm ára dóttur sína, þriggja ára son og átta mánaða son og er hún lömuð eftir að hafa reynt að svipta sig lífi í kjölfarið. Patrick Clancy hringdi í Neyðarlínuna þegar hann kom að eiginkonu sinni liggjandi í jörðinni fyrir utan heimili þeirra árið 2023. Hún var þá mjög særð eftir að hafa stokkið út um glugga á annarri hæð. Hann reyndi, samkvæmt AP fréttaveitunni, að ná sambandi við hana og sagði starfsmanni Neyðarlínunnar að hann ætlaði að ganga úr skugga um að börnin væru óhullt. Skömmu síðar heyrðist angistarkvein á upptökunni og spurði starfsmaður Neyðarlínunnar ítrekað hvað hefði gerst.“ „Hún drap börnin!“ öskraði Patrick Clancy í símann. Hluta af vitnisburði hans í gær má sjá í spilaranum hér að neðan. Allan vitnisburðinn má finna hér. Upptaka af símtalinu hefur ekki verið birt opinberlega. Hljóðið var tekið af útsendingunni í dómsal í gær þegar það var spilað en það gerist eftir um sjö mínútur í spilaranum hér að neðan. Myndavélinni var þá beint að Lindsay Clandy. Foreldrar hennar voru einnig í salnum og grétu. Patrick Clancy hafði yfirgefið dómsalinn þegar upptakan var spiluð. Réttarhöldin hafa að miklu leyti snúist um geðræna heilsu Linsday á þessum tíma. Lögmaður hennar segir hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Verði hún fundin sek stendur Lindsay frammi fyrir lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hún gæti einnig verið vistuð á stofnun. Patrick Lindsay hefur sagt að hann fyrirgefi henni og að hann telji hana veika frekar en illa. Þegar þau hittust í dómsal var það í fyrsta sinn sem þau hittust síðan hún mun hafa myrt börnin. Fyrr í vikunni hafði Patrick sagt í dómsal að geðheilsa Lindsay hefði versnað verulega í aðdraganda dauða barnanna. Hún hafði þá sagt honum frá því að hún hefði hugsað um að skaða sjálfa sig og börnin. Skömmu áður hafði hún lagt sjálfa sig inn á geðdeild. Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin. Hafði sagt eiginmanninum frá slæmri geðheilsu Kviðdómendur sáu einnig í gær upptöku úr öryggismyndavél apóteks sem Patrick fór í til að kaupa lyf. Þá hringdi hann í Lindsay til að spyrja hvaða lyf hann ætti að kaupa. Í dómsal sagði hann að hún hefði verið þögul. Þegar hann kom heim virtist enginn heima og öll barnaherbergi tóm. Hann fann svo blóð í hjónaherberginu og opinn glugga. Lindsay lá þar fyrir neðan, særð en með meðvitund. Hún sagðist hafa reynt að svipta sig lífi og sagði að börnin væru í kjallaranum, án þess þó að segja að þau væru dáin. Hann hljóp niður í kjallara og kom þar að börnunum þremur, þar sem þau höfðu verið kyrkt með æfingarteygjum. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þriðja degi réttarhaldanna í spilaranum hér að neðan. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Sjá meira
Patrick Clancy hringdi í Neyðarlínuna þegar hann kom að eiginkonu sinni liggjandi í jörðinni fyrir utan heimili þeirra árið 2023. Hún var þá mjög særð eftir að hafa stokkið út um glugga á annarri hæð. Hann reyndi, samkvæmt AP fréttaveitunni, að ná sambandi við hana og sagði starfsmanni Neyðarlínunnar að hann ætlaði að ganga úr skugga um að börnin væru óhullt. Skömmu síðar heyrðist angistarkvein á upptökunni og spurði starfsmaður Neyðarlínunnar ítrekað hvað hefði gerst.“ „Hún drap börnin!“ öskraði Patrick Clancy í símann. Hluta af vitnisburði hans í gær má sjá í spilaranum hér að neðan. Allan vitnisburðinn má finna hér. Upptaka af símtalinu hefur ekki verið birt opinberlega. Hljóðið var tekið af útsendingunni í dómsal í gær þegar það var spilað en það gerist eftir um sjö mínútur í spilaranum hér að neðan. Myndavélinni var þá beint að Lindsay Clandy. Foreldrar hennar voru einnig í salnum og grétu. Patrick Clancy hafði yfirgefið dómsalinn þegar upptakan var spiluð. Réttarhöldin hafa að miklu leyti snúist um geðræna heilsu Linsday á þessum tíma. Lögmaður hennar segir hana hafa þjáðst af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna. Þegar hún framdi morðin sagðist hún hafa heyrt rödd sem sagði henni að bana börnunum og svo sjálfri sér. Verði hún fundin sek stendur Lindsay frammi fyrir lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Hún gæti einnig verið vistuð á stofnun. Patrick Lindsay hefur sagt að hann fyrirgefi henni og að hann telji hana veika frekar en illa. Þegar þau hittust í dómsal var það í fyrsta sinn sem þau hittust síðan hún mun hafa myrt börnin. Fyrr í vikunni hafði Patrick sagt í dómsal að geðheilsa Lindsay hefði versnað verulega í aðdraganda dauða barnanna. Hún hafði þá sagt honum frá því að hún hefði hugsað um að skaða sjálfa sig og börnin. Skömmu áður hafði hún lagt sjálfa sig inn á geðdeild. Hún var útskrifuð þaðan nítján dögum áður en hún myrti börnin. Hafði sagt eiginmanninum frá slæmri geðheilsu Kviðdómendur sáu einnig í gær upptöku úr öryggismyndavél apóteks sem Patrick fór í til að kaupa lyf. Þá hringdi hann í Lindsay til að spyrja hvaða lyf hann ætti að kaupa. Í dómsal sagði hann að hún hefði verið þögul. Þegar hann kom heim virtist enginn heima og öll barnaherbergi tóm. Hann fann svo blóð í hjónaherberginu og opinn glugga. Lindsay lá þar fyrir neðan, særð en með meðvitund. Hún sagðist hafa reynt að svipta sig lífi og sagði að börnin væru í kjallaranum, án þess þó að segja að þau væru dáin. Hann hljóp niður í kjallara og kom þar að börnunum þremur, þar sem þau höfðu verið kyrkt með æfingarteygjum. Áhugasamir geta fylgst með beinni útsendingu frá þriðja degi réttarhaldanna í spilaranum hér að neðan. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Bandaríkin Erlend sakamál Mál Lindsay Clancy Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Sjá meira