Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2026 10:00 Viktor Hovland verður annar fyrirliða norska liðsins en hann er í þrettánda sæti á heimslista karlagolfsins. EPA/STEVEN M. FALK Norskir og danskir kylfingar munu keppa sín á milli árlega frá og með árinu 2027 en keppnin hefur fengið nafnið „Battle of the Vikings“ og fyrsta mótið fer fram á næsta ári. Leikinn verður einn dagur í Noregi og einn dagur í Danmörku.
Viktor Hovland og Kristoffer Reitan verða fyrirliðar norska liðsins en danska liðinu verður stýrt af bræðrunum Nicolai og Rasmus Höjgaard. „Nú er ýmislegt að gerast, við erum í samstarfi við Dani og spilum svolítið upp á þennan ríg, við ýtum hvort öðru áfram til að gera hvort annað betra,“ sagði Viktor Hovland á blaðamannafundi í Ósló en bæði karlar og konur taka þátt. Per @golfshowet the Norwegian & Danish golf associations are launching “The Viking” next year - an annual Norway vs Denmark match comprising 12-man teams captained by Hovland/Reitan and the Hojgaards. Scandi golf going from strength to strength. pic.twitter.com/bt7hi4RuZv— Sam Harrop (@sam_golf) July 29, 2026 „Þetta er spennandi verkefni sem við höfum rætt um í nokkurn tíma. Við þurftum að hugsa út fyrir kassann og finna upp á einhverju nýju þar sem engin Evrópumótaröð verður í Danmörku á næsta ári,“ sagði Nicolai Höjgaard í samtali við TV 2 Sport. Liðin í mótinu samanstanda af tólf kylfingum sem eru valdir af liðsstjórunum, sem einnig taka sjálfir þátt í mótinu. Liðin verða samsett úr unglingum, kvenkylfingum, ungum leikmönnum og leikmönnum frá ECCO Tour, HotelPlanner Tour, DP World Tour og PGA Tour. Nicolai Höjgaard vonast einnig til þess að mótið geti gefið ungu leikmönnunum smjörþefinn af því að vera hluti af mótaröð. „Við viljum gefa þeim upplifunina af því að komast út og spila hver gegn öðrum, að ferðast sem atvinnumaður og keppa sín á milli. Svo er fjárhagslegur ávinningur í þessu sem hjálpar þeim á ferlinum. Þannig að okkur fannst þetta ganga mjög vel upp og vera spennandi,“ sagði Höjgaard. „Tilfinningin að gefa eitthvað til baka er næstum betri tilfinning en að fara út og spila góðan golfhring. Ef við getum verið með í að móta danskt golf og golf á Norðurlöndunum, þá yljar það um hjartarætur og það er líka eitt af markmiðunum með þessu,“ sagði Höjgaard.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira