Sjáðu Ágúst Orra tryggja Breiðabliki sigur og viðhalda ótrúlegri tölfræði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 11:32 Ágúst Orri Þorsteinsson hefur komið með beinum hætti að níu mörkum í Bestu deild karla í sumar, skorað fimm sjálfur og lagt upp fjögur fyrir samherja sína. vísir/guðmundur Aðeins eitt mark var skorað í leikjunum tveimur í Bestu deild karla í gær. Ágúst Orri Þorsteinsson gerði það og tryggði Breiðabliki sigur á ÍBV á Eikarvellinum í Kópavogi.
Markalaust var í hálfleik í leik Breiðabliks og ÍBV. Á 51. mínútu sendi Óli Valur Ómarsson á Ágúst Orra sem sneri skemmtilega með boltann og skaut að marki Eyjamanna. Ari í Haraldsstovu Petersen varði en boltinn barst aftur til Ágústar Orra sem skoraði með vinstri fótar skoti. Þetta var fimmta mark kantmannsins í fimmtán leikjum í Bestu deildinni í sumar. Á síðasta tímabili skoraði hann einungis eitt mark í 26 deildarleikjum. Vegna marksins viðhalda Blikar einnig ótrúlegri tölfræði. Breiðablik hefur nefnilega skorað í 35 deildarleikjum í röð á heimavelli. Blikum mistókst síðast að skora á Eikarvellinum í 0-2 tapi fyrir Stjörnumönnum í lokaumferð Bestu deildarinnar 8. október 2023. Breiðablik skoraði í öllum heimaleikjunum sínum í Bestu deildinni 2024 og 2025 og hefur skorað í öllum átta deildarleikjunum á Eikarvellinum í sumar. Blikar hafa unnið sex af átta heimaleikjum sínum í Bestu deildinni á þessu tímabili en aðeins tvo af átta útileikjum. Breiðablik er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig, fimm stigum á eftir Fram sem er í 3. sætinu. Blikar eru hins vegar tíu stigum á undan Valsmönnum sem verma 5. sætið. ÍBV, sem hefur aðeins fengið eitt stig í síðustu þremur leikjum, er í 8. sæti deildarinnar með sextán stig, þremur stigum frá fallsæti. Markið úr leik Breiðabliks og ÍBV má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla Breiðablik ÍBV Tengdar fréttir „Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sagði 1-0 sigurinn á ÍBV í 16. umferð Bestu deildar karla mögulega falla undir skilgreininguna á iðnaðarsigri. Honum fannst leikurinn jafn og viðurkenndi að frammistaða Blika hefði ekki verið sannfærandi allan tímann. 27. júlí 2026 20:41 Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Breiðablik vann 1-0 sigur á ÍBV á Kópavogsvelli í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Ágúst Orri Þorsteinsson var hetja heimamanna. 27. júlí 2026 19:55 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
„Þetta eru fagmenn sem lifa fyrir boltann“ Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, sagði 1-0 sigurinn á ÍBV í 16. umferð Bestu deildar karla mögulega falla undir skilgreininguna á iðnaðarsigri. Honum fannst leikurinn jafn og viðurkenndi að frammistaða Blika hefði ekki verið sannfærandi allan tímann. 27. júlí 2026 20:41
Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 1-0 | Ágúst Orri hetjan Breiðablik vann 1-0 sigur á ÍBV á Kópavogsvelli í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Ágúst Orri Þorsteinsson var hetja heimamanna. 27. júlí 2026 19:55