Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar 28. júlí 2026 07:00 Nei-menn segja okkur að já-atkvæði 29. ágúst þýði „aðlögun“, að Ísland þurfi að breyta lögum sínum, stofnunum sínum, kerfum sínum. Að eitthvað óafturkræft gerist ef við segjum já. Þetta er rangt. Og nú liggur það fyrir svart á hvítu. Hvað gerðist síðast? Ísland var í aðildarviðræðum 2009–2013. Fjögur ár. ESB veitti Íslandi um 1,8 milljarða króna í IPA-styrki. Þeir foru í: Endurbætur á þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Kortlagningu vistkerfa og fuglalífs. Þýðingu á regluverki. Fræðslu fyrir fullorðna með litla formlega menntun. Þetta er ekki „aðlögun.“ Þetta er uppbygging. Og ekkert af þessu var neikvætt. Engum lögum var breytt Utanríkisráðuneytið staðfesti þetta formlega 22. maí 2026: á fjögurára viðræðum var engin aðlögun — hvorki lagabreytingar né stofnanabreytingar — umfram venjulegar EES-skuldbindingar. Af hverju ekki? Vegna þess að ESB samþykkti strax í upphafi: ekki er hægt að gefa sér fyrirfram útkomu þjóðaratkvæðagreiðslu. Engar breytingar fyrr en þjóðin hefur sagt sitt — í seinni þjóðaratkvæðagreiðslu um endanlegan samning. Hvað þýðir já 29. ágúst? Það opnar viðræður. Ekkert annað. Engin lög breytast. Engum stofnunum er breytt. Ekkert óafturkræft gerist. Þjóðin heldur öllum spilum sínum og fær annað tækifæri til að segja nei ef samningurinn hentar ekki. Ráðuneytið segir: „Ekki verði ráðist í neinar breytingar á stofnunum, kerfum og lögum og regluverki fyrr en að undangengnu endanlegu samþykki íslensku þjóðarinnar.“ Svo hvað er verið að óttast? Þeir sem tala um „aðlögun“ sem ástæðu til að kjósa nei eru annaðhvort illa upplýstir eða reyna vísvitandi að skapa ótta við eitthvað sem á sér enga stoð í reynslu eða lögum. Já er ekki já við ESB. Já er já við að semja. Höfundur er sérfræðingur í samstarfi og smíðaði verdbolga.net, opið mælaborð sem flokkar hvern lið verðbólgunnar eftir uppruna: ríki, erlendu eða innlendu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nei-menn segja okkur að já-atkvæði 29. ágúst þýði „aðlögun“, að Ísland þurfi að breyta lögum sínum, stofnunum sínum, kerfum sínum. Að eitthvað óafturkræft gerist ef við segjum já. Þetta er rangt. Og nú liggur það fyrir svart á hvítu. Hvað gerðist síðast? Ísland var í aðildarviðræðum 2009–2013. Fjögur ár. ESB veitti Íslandi um 1,8 milljarða króna í IPA-styrki. Þeir foru í: Endurbætur á þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Kortlagningu vistkerfa og fuglalífs. Þýðingu á regluverki. Fræðslu fyrir fullorðna með litla formlega menntun. Þetta er ekki „aðlögun.“ Þetta er uppbygging. Og ekkert af þessu var neikvætt. Engum lögum var breytt Utanríkisráðuneytið staðfesti þetta formlega 22. maí 2026: á fjögurára viðræðum var engin aðlögun — hvorki lagabreytingar né stofnanabreytingar — umfram venjulegar EES-skuldbindingar. Af hverju ekki? Vegna þess að ESB samþykkti strax í upphafi: ekki er hægt að gefa sér fyrirfram útkomu þjóðaratkvæðagreiðslu. Engar breytingar fyrr en þjóðin hefur sagt sitt — í seinni þjóðaratkvæðagreiðslu um endanlegan samning. Hvað þýðir já 29. ágúst? Það opnar viðræður. Ekkert annað. Engin lög breytast. Engum stofnunum er breytt. Ekkert óafturkræft gerist. Þjóðin heldur öllum spilum sínum og fær annað tækifæri til að segja nei ef samningurinn hentar ekki. Ráðuneytið segir: „Ekki verði ráðist í neinar breytingar á stofnunum, kerfum og lögum og regluverki fyrr en að undangengnu endanlegu samþykki íslensku þjóðarinnar.“ Svo hvað er verið að óttast? Þeir sem tala um „aðlögun“ sem ástæðu til að kjósa nei eru annaðhvort illa upplýstir eða reyna vísvitandi að skapa ótta við eitthvað sem á sér enga stoð í reynslu eða lögum. Já er ekki já við ESB. Já er já við að semja. Höfundur er sérfræðingur í samstarfi og smíðaði verdbolga.net, opið mælaborð sem flokkar hvern lið verðbólgunnar eftir uppruna: ríki, erlendu eða innlendu.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar