Infantino svarar gagnrýnendum í langri færslu: „Heimurinn þarf ást, ekki hatur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júlí 2026 08:30 Gianni Infantino gæti ekki verið ánægðari með hvernig heimsmeistaramótið 2026 lukkaðist. epa/WILL OLIVER Gianni Infantino, forseti FIFA, fór mikinn á Instagram þar sem hann tók til varna fyrir sjálfan sig og Alþjóða knattspyrnusambandið. Hann sakaði þá sem hafa gagnrýnt hann og FIFA um að dreifa hatri.
Infantino var ítrekað gagnrýndur meðan á heimsmeistaramótinu í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó stóð, meðal annars eftir að leikbann bandaríska framherjans Folarins Balogun var afturkallað. FIFA var einnig gagnrýnt fyrir hátt miðaverð á HM, meðferðina á íranska landsliðinu og að sómalska dómaranum Omar Artan hafi verið meinuð innganga í Bandaríkin. Þrátt fyrir allt þetta stendur Infantino keikur og hélt mikla varnarræðu fyrir sig og FIFA á Instagram. „Til allra ykkar sem misstuð af leiknum fagra, tilfinningunum, fögnuðinum, hlátrinum, grátinum og gleðinni. Til allra ykkar sem misstuð af því að sjá börn, ungabörn, ömmur og afa og foreldra koma saman yfir leiknum, vil ég segja fyrirgefðu að leikjunum sé nú lokið og fyrirgefðu að þið misstuð af allri þessari gleði og samveru. Fyrirgefðu að þið voruð svo uppfull af hatri og gagnrýni að þið misstuð af þessu öllu,“ skrifaði Infantino. View this post on Instagram A post shared by Gianni Infantino - FIFA President (@gianni_infantino) „Til þeirra sem sitja með sína penna og pappírsarkir á bak við skjáina sína og dreifa hatri og fölskum sögusögnum, vil ég segja að á meðan þið sitjið aðgerðalaus erum við hjá FIFA í fremstu víglínu að skipuleggja, vinna hörðum höndum og bjóða upp á bestu sýningu í heimi.“ Enginn fjandskapur, bara gleði Infantino segir að allt hafi gengið að óskum á HM. Þar hafi ekkert ofbeldi verið, allir hundrað prósent öruggir og gleðin og hamingjan verið við völd. „Sjö milljónir manna frá rúmlega tvö hundruð löndum nutu mótsins í sextán frábærum borgum og leikvöngum; engar uppákomur, enginn fjandskapur, ekkert ofbeldi, bara gleði, tilfinningar, hamingja, eining og samheldni. Allir voru öruggir og glaðir,“ skrifaði Infantino sem kvaðst einnig ánægður með hversu margar stórstjörnur úr öðrum geirum létu sjá sig á leikjum heimsmeistaramótsins. Sameinuðum tvö lönd í stríð Infantino þakkaði ríkisstjórnum landanna sem héldu mótið, FIFA, lögreglu og sérstaklega sjálfboðaliðum fyrir að vera hluti af stærsta og mesta atburði á jörðinni. „Á meðan þeir fögnuðu voruð þið upptekin við að sá hatursfræjum. Heimurinn þarf ást, ekki hatur; umburðarlyndi, ekki dilkadrætti; að fagna, ekki syrgja,“ skrifaði Infantino og beindi svo athygli sinni að íranska landsliðinu. Infantino og góðvinur hans, Donald Trump, með HM-styttuna.epa/CHRISTOPHER NEUNDORF „Meðan þið breidduð út hatur lögðum við okkur öll fram við að sameina tvö lönd sem eru í stríði. Íran kom til Bandaríkjanna án nokkurra vandkvæða.“ Íranir kvörtuðu yfir slæmri meðferð meðan á þátttöku þeirra á HM stóð og sögðu allt gert til að leggja stein í þeirra götu. Viðurkennt í stærstu deildum heims Infantino beindi svo athygli sinni að gagnrýni á dómgæsluna á mótinu og banni Baloguns sem var aflétt. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist hafa hringt í Infantino vegna bannsins og í kjölfarið var það afturkallað af aganefnd FIFA. Hún hefur þó ekki rökstutt ákvörðun sína. „Vissulega eru „umdeilanlegar“ ákvarðanir dómara eða „undarlegir“ agaúrskurðir, eins og til dæmis hugsanlega röng rauð eða gul spjöld eða seinni tíma ákvarðanir um að dæma leikmenn ekki í bann í ákveðnum aðstæðum, daglegt brauð og almennt viðurkennt í sumum af stærstu deildum heims. Það er athyglisvert að sömu lönd og iðka þetta séu þau sem gagnrýna þetta,“ skrifaði Infantino. Hugleiðið og horfið á fótboltaleik Forsetinn lýsti því að lokum yfir hversu stoltur hann væri af því hvernig tekist hefði til á HM og gagnrýnendur hans og FIFA hefðu ekki mikið til síns máls. „Við erum öll jöfn; stuðningsmenn, leikmenn og bara manneskjur. Við hjá FIFA gætum ekki verið stoltari af því að verða vitni að þessum augnablikum ástar, gleði og einingar. Til ykkar sem verjið tíma ykkar í að hata okkur, notið tímann til að staldra við, hugleiða, biðja eða horfa á fótboltaleik og taka eftir andlitunum, augunum og tilfinningunum. Því einungis leikurinn fagri getur framkallað svona einstaka sýningu, sýningu þar sem allir verða eitt og sameinast á ný sem manneskjur,“ skrifaði Infantino. „Fyrir pennana, pappírinn og skjáina, megið þið finna ást og frið sem fólkið á bak við fann ekki. Megið þið finna frið; við hjá FIFA fundum okkar og buðum upp á besta heimsmeistaramótið. Megi fótboltinn sigra hatrið.“
FIFA HM 2026 í fótbolta Deilur um Gianni Infantino Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira