Rúnar: Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð Kolbeinn Kristinsson skrifar 26. júlí 2026 22:30 Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, er á leið á sína fyrstu Þjóðhátíð því Framarar mæta ÍBV úti í Eyjum um verslunarmannahelgina. Vísir/Anton Brink Rúnar Kristinsson þjálfari Fram taldi markalaust jafntefli liðsins gegn FH á Lambhagavelli sanngjörn úrslit. Honum fannst gæði liðanna á síðasta þriðjungi vallarins hafa verið of lítil til þess að annað þeirra verðskuldaði sigurinn. „
Ég held að bæði lið geti sætt sig við þetta jafntefli. Þetta var ekkert sérstakur fótboltaleikur. Það var spilað ágætlega inn á milli en næstsíðasta og síðasta sendingin, fyrirgjafirnar og allt slíkt var bara lélegt hjá báðum liðum,“ sagði Rúnar eftir leik. Færin voru af skornum skammti en bæði lið fengu þó tækifæri til að stela sigrinum undir lokin. Fram fékk gott færi þegar Róbert ætlaði að renna boltanum fyrir á liðsfélaga sinn Jakob en sendingin var ekki nægilega nákvæm og rataði ekki alla leið. Hinum megin komst Kjartan Kári Halldórsson einn gegn markverði Fram án þess að ná að nýta færið. „Það vantaði einfaldlega gæði á síðasta þriðjungi vallarins.“ Rúnar sagði hitann á vellinum einnig hafa sett mark sitt á leikinn. Veðrið hafi verið gott en aðstæður erfiðar fyrir leikmenn beggja liða þegar leið á kvöldið. „Það var mikill hiti niðri á vellinum og ég held að það hafi dregið af mönnum. Menn voru orðnir þreyttir og leikurinn í heild sinni var ekkert sérstakur. En vel dæmdur leikur og ekkert út á dómgæsluna að setja.“ Næsti leikur Fram er gegn ÍBV í Vestmannaeyjum laugardaginn 1. ágúst. Leikurinn fer fram um Þjóðhátíðarhelgina og viðurkenndi Rúnar að það yrði ný upplifun fyrir hann. „Það er alltaf gaman að koma til Vestmannaeyja og alltaf frábært þar. Ég hef aldrei farið á Þjóðhátíð og aldrei spilað leik á Þjóðhátíð, þannig að þetta verður áhugavert. Vonandi fáum við gott veður, fullt af fólki á völlinn og getum gert betur en við gerðum hér í kvöld.“
Besta deild karla Fram FH Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira