Jóhannes Karl: Strákarnir eiga skilið frí yfir helgina Kolbeinn Kristinsson skrifar 26. júlí 2026 21:45 Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, sá sitt lið halda hreinu þriðja leikinn í röð. Vísir/Hulda Margrét Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var að mörgu leyti sáttur eftir markalaust jafntefli gegn Fram á Lambhagavellinum. FH hélt hreinu þriðja leikinn í röð en Jóhannes taldi liðið einnig hafa fengið tækifæri til að vinna leikinn. „
Við erum sáttir við að koma hingað, standa okkur vel og halda hreinu. Við fengum samt alveg tækifæri til að skora, sérstaklega í seinni hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl eftir leik. Hann benti á að FH hefði fengið nokkrar álitlegar stöður eftir hlé, meðal annars skallafæri og skot frá Kjartani Kára, auk þess sem liðið hefði nokkrum sinnum verið nálægt því að sleppa í gegn. „Við fengum stöður í seinni hálfleiknum til að vinna leikinn. Að sama skapi fengu Framarar líka sínar stöður þannig að það hefðu alveg getað komið mörk í leikinn.“ Jóhannes sagði jákvætt að ná í stig gegn einu sterkasta liði deildarinnar og halda áfram að byggja ofan á öflugan varnarleik undanfarið. „Við verðum að vera ánægðir með að koma hingað, spila gegn einu besta liði landsins og halda hreinu þriðja leikinn í röð. Við tökum þetta stig en við viljum auðvitað vinna alla leiki.“ FH hefur gert nokkur jafntefli að undanförnu og Jóhannes viðurkenndi að eitt stig væri ekki jafn verðmætt og þrjú. Hann sagði þó mikla vinnu liggja að baki því hversu erfitt væri að skora gegn liðinu. „Það gerist ekki af sjálfu sér. Menn þurfa að vera tilbúnir að leggja hart að sér, vera aggressífir inni í teig, henda sér fyrir skot og gera alla þessa hluti. Við gerðum það virkilega vel í dag og höfum líka gert það í undanförnum leikjum.“ Hann sagði FH jafnframt hafa skapað nægilega mikið til að eiga möguleika á að hirða öll stigin. „Við vitum að við getum ekki komið hingað og spilað eins og Víkingur gerði þegar þeir unnu 5-0. Við erum ekki komnir á þann stað í dag og erum á öðrum stað sem lið. Samt gerðum við að einhverju leyti nóg til að geta tekið sigurinn.“ Nú tekur við stutt hlé hjá FH áður en liðið mætir KR í Kaplakrika miðvikudaginn 5. ágúst. Jóhannes ætlar að gefa leikmönnum sínum frí um verslunarmannahelgina áður en undirbúningurinn hefst að nýju. „Þeir fá helgarfrí og svo undirbúum við okkur á mánudegi og þriðjudegi fyrir leikinn gegn KR. Strákarnir eru fagmenn og búnir að leggja hart að sér í langan tíma. Þeir eiga skilið frí yfir helgina en auðvitað þurfum við að halda fókusnum og vera klárir í leikinn.“
Besta deild karla FH Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira