Sport

Vann Ís­lands­meistara­titilinn á 0,02 sekúndum: „Sér­stak­lega skemmti­legt“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kolbeinn Höður Gunnarsson í viðtalinu við Ríkissjónvarpið eftir hlaupið.
Kolbeinn Höður Gunnarsson í viðtalinu við Ríkissjónvarpið eftir hlaupið. Skjámynd/RÚV

Kolbeinn Höður Gunnarsson vann Íslandsmeistaratitilinn í 100 metra hlaupi karla með minnsta mun.

Kolbeinn kom í mark á 10,95 sekúndum og var aðeins 0,02 sekúndum á undan Kristófer Þorgrímssyni sem kláraði hlaupið á 10,97 sekúndum.

Elvar Karl Auðunsson varð þriðji í hlaupinu á 11,26 (.2573) sekúndum en Gabríel Glói Freysson varð fjórði á hársbreidd en hann kom í mark á 11,26 (.2583) sekúndum. Það munaði bara 0,001 sekúndu á þriðja og fjórða sætinu og Gabríel Glói var því bara 0,1 sekúndubroti frá bronsinu.

Kolbeinn Höður ræddi við Hans Steinar Bjarnason í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins eftir sigurinn.

„Þetta hafa örugglega verið með einum tæpustu úrslitum á Meistaramóti Íslands bara hingað til og bara ógeðslega gaman að skila svona úrslitum á hundraðasta mótinu,“ sagði Kolbeinn Höður.

„Ég er bara glaður og hress. Ég kom ekki með miklar væntingar því undirbúningurinn er ekki búinn að vera eins og ég vildi hafa hann. Ég ætlaði að gefa bara allt sem ég átti og það skilaði bara flottum sigri í dag,“ sagði Kolbeinn.

„Þetta er náttúrulega alltaf bara gleði þó að tíminn hafi ekkert verið sérstakur. Við vildum örugglega allir sjá betri tíma en maður er bara fyrst og fremst hérna að sækja titil og það er sérstaklega skemmtilegt þegar þetta er svona tæpt,“ sagði Kolbeinn.

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir varð Íslandsmeistari í 100 metra hlaupi kvenna en hún vann örugglega á 11,83 sekúndum en næst kom Lena Rún Aronsdóttir á 12,46 sekúndum og Júlía Mekkín Guðjónsdóttir á 12,52 sekúndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×