Handbolti

Hafnaði mörgum góðum til­boðum og fór frekar heim

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson spilar með IFK Ystad í sænsku B-deildinni í vetur.
Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson spilar með IFK Ystad í sænsku B-deildinni í vetur. IFK Ystad

Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson er kominn aftur heim til Svíþjóðar og hefur samið við uppeldisfélagið sitt. Það voru samt mörg önnur félög áhugasöm og val hans kom nokkuð á óvart.

Gottfridsson segist hafa hafnað „mörgum góðum tilboðum frá toppfélögum í Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi“ til að snúa aftur heim í uppeldisfélag sitt, IFK Ystad.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á heimasíðu félagsins. Þetta vakti mikla athygli þó Ystad sé vissulega gamalt stórveldi í sænskum handbolta en eins og er spilar félagið í sænsku B-deildinni.

Hinn 33 ára gamli Gottfridsson hefur gert þriggja ára samning og snýr aftur eftir mörg ár hjá Flensburg-Handewitt, áður en hann fór til ungverska liðsins Pick Szeged árið 2025.

Eftir aðeins níu mánuði í Ungverjalandi rifti Pick Szeged þriggja ára samningnum, sem olli Gottfridsson miklum vonbrigðum og skildi hann eftir með óbragð í munninum. Nú snýr hann aftur heim til IFK Ystad, þar sem ferillinn hófst.

Gottfridsson var aðeins tvítugur þegar hann yfirgaf Ystads IF árið 2013 en hann spilaði í tólf ár með Flensburg-Handewitt.

Hann hefur skorað 536 mörk í 176 landsleikjum fyrir Svíþjóð og vann fern verðlaun á stórmótum, þar á meðal Evrópumeistaratitilinn 2022 og silfur á HM 2021 og EM 2018. Hann var kosinn mikilvægastur á bæði EM 2018 og EM 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×