Innlent

Flug­mennirnir sviptir flug­leyfi

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lágflugið bar nafn með rentu.
Lágflugið bar nafn með rentu. Aðsend

Tveir flugmenn voru sviptir flugleyfi tímabundið, annar í eitt ár og hinn í tvo, fyrir að hafa flogið flugvél Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjar þann ellefta apríl.

Þórhildur Elín Elínardóttir almannatengill hjá Samgöngustofu segir að búið sé að tilkynna þeim ákvörðunina.

Flugstjóri vélarinnar var að fljúga sitt síðasta flug með Icelandair þegar ákveðið var að fljúga kveðjulágflug yfir heimabyggðina í Eyjum. Flugmaðurinn sem flaug með honum var sviptur leyfi í ár og hefur ekki fengið að fljúga á meðan rannsókn málsins stendur samkvæmt umfjöllun Ríkisútvarpsins.

Þórhildur segir flugmennina hafa kost á að kæra ákvörðun Samgöngustofu til ráðuneytisins en ekki er ljóst hvort það hafi verið gert. Rannsókn Samgöngustofu er ekki lokið enn og ekki hefur verið tekin ákvörðun gagnvart félaginu Icelandair.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×