Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 20. júlí 2026 22:13 Tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða voru handteknir í tengslum við málið en Landsréttur hafnaði gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar á Suðurlandi. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum en rannsókn lögreglu hófst í janúar á þessu ári. Krufningarskýrsla hafi leitt í ljós að ekki sé grundvöllur fyrir því að halda rannsókn áfram.
Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, staðfestir í samtali við Vísi að rannsókn sé hætt en gat ekki veitt frekari upplýsingar. Eyjafréttir greina fyrst frá og segja ákvörðunina hafa verið tekna í dag eftir að lögregla hafi farið yfir endanlega krufningarskýrslu sem henni hafi borist fyrir helgi. Niðurstöður hafi verið að ekki sé grundvöllur til að halda rannsókn áfram. Þá segir að sakborningar og verjendur í málinu hafi verið upplýstir um ákvörðunina og þeim send bréf þess efnis. Lögregla hóf rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri þann 28.janúar á þessu ári og voru tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins Hraunbúða handteknir vegna málsins. Konan hafði þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu en rannsókn lögreglu hafðist eftir tilkynningu annars starfsmannsins. Lögreglan á Suðurlandi krafðist áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir starfsmönnunum en bæði Héraðsdómur Suðurlands og Landsréttur höfnuðu gæsluvarðhaldskröfunni. Rannsókn málsins hélt áfram þrátt fyrir úrskurð Landsréttar. Rannsókn var í höndum lögreglustjórans á Suðurlandi en ekki lögreglunnar í Vestmannaeyjum vegna fjölskyldutengsla starfsmanns þar við málsaðila.
Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Vestmannaeyjar Lögreglumál Hjúkrunarheimili Tengdar fréttir Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. 3. febrúar 2026 15:33 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira
Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. 3. febrúar 2026 15:33