Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar 21. júlí 2026 07:30 Síðan ég lauk störfum sem bæjarstjóri fyrir rúmlega einu og hálfu ári hef ég ekki verið að tjá mig mikið opinberlega um heilsu mína eða heilsutengd málefni almennt. Eins og fram kom í fréttum á sínum tíma þá var ég greindur með langvinnan Covid sjúkdóm og þó svo að ég hafi reynt að gera allt sem ég get gert sjálfur til að vinna að bættri heilsu minni þá hefur hún því miður ekki þróast í rétta átt. Líkt og hjá mörgum sem eru að glíma við sama sjúkdóm eða skylda sjúkdóma þá hefur einkennunum fjölgað og heilsan versnað. Þó svo að ég hafi alltaf verið mjög virk manneskja og hreyft mig mikið þá hef ég lítið getað hreyft líkama minn í rúm 2 ár og haft mjög takmarkaða getu til samfélagslegrar þátttöku. Og auðvitað hefur þetta haft umtalsverð áhrif líka á lífsgæði fjölskyldunnar minnar. Drögum úr fordómum og hlustum á okkar færustu sérfræðinga Eins og flestir ef ekki allir sem greinast með ákveðna sjúkdóma þá hef ég fundið fyrir talsverðum fordómum í samfélaginu og því miður einnig innan heilbrigðiskerfisins. Þó svo að þeir læknar sem eru sérfræðingar á þessu sviði hafi ítrekað lýst því að sjúklingar með langvinnan Covid sjúkdóm, ME taugasjúkdóm og skylda sjúkdóma séu með einna mestu sjúkdómsbyrði af öllum sjúklingum, þá njóta þessir sjúklingahópar í raun mjög takmarkaðrar þjónustu innan kerfisins á Íslandi, ekki síst þess sem skiptir flesta sjúklinga oft mestu máli, sem er sérhæfð stuðnings- og endurhæfingarþjónusta. Eins og reynslan hefur kennt okkur, til dæmis og ekki síst af þeirri góðu starfsemi sem er innan Ljóssins, sem er sérhæfð endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess, þá hefur sá hluti heilbrigðiskerfisins reynst þeim sjúklingum einna mikilvægastur til að bæta líkamlega, andlega og félagslega líðan þeirra. Það á auðvitað við um flesta sjúklingahópa, enda er það áfall fyrir alla að missa heilsuna og glíma við langvinn veikindi, t.d. vegna afleiðinga alvarlegra slysa, taugasjúkdóma, hjarta- og lungnasjúkdóma eða annarra sjúkdóma. Þá getur fólk misst starfsgetu, átt í erfiðleikum með daglegt líf, fundið fyrir kvíða, depurð og félagslegri einangrun. Tímanleg og viðeigandi heilbrigðisþjónusta getur reynst góð fjárfesting Frá sjónarhóli jafnræðis í heilbrigðisþjónustunni ætti aðgengi að sérhæfðri endurhæfingu og stuðningsþjónustu því að sjálfsögðu að ráðast af þörfum sjúklinganna. Enda getur slík þjónusta, sem felur m.a. í sér líkamlega endurhæfingu, sálfélagslegan stuðning , fræðslu og jafningjastuðning, verið það sem ræður endanlegum úrslitum um hvort fólk öðlast bætt lífsgæði, aukna getu til að sinna athöfnum daglegs lífs og stuðlað að þátttöku fólks í samfélaginu. Þannig má í raun líta á þennan hluta heilbrigðiskerfisins sem mjög mikilvæga fjárfestingu, sem ekki stuðlar bara að betri lífsgæðum sjúklinganna heldur einnig bættu og skilvirkara samfélagi. Þegar einstaklingar fá viðeigandi stuðning á réttum tíma þá aukast líkurnar á því að þeir geti haldið virkni og jafnvel snúið aftur til vinnu eða náms. Þannig dregur óhjákvæmilega úr álagi á öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins og þörfinni fyrir aukinni þjónustu innan þess. Eins og staðan er í dag þá standa nokkrir fjölmennir sjúklingahópar, það með talið fólk með langvinn einkenni Covid, ME taugasjúkdóminn, POTS, og sjúklingar sem hafa orðið fyrir heilsutjóni af völdum umhverfisáreitis, t.d. myglusveppaeitrunar eða loftmengunar, frammi fyrir því að njóta ekki slíkrar þjónustu. Þegar slíkt er raunin þá er að sjálfsögðu hætta á því að heilsa fólks versni og hlutfall þeirra sem detta út af vinnumarkaði og jafnvel samfélaginu fari stöðugt fjölgandi með tilheyrandi kostnaði fyrir samfélagið. Sú staða sem við blasir leiðir því ekki aðeins til skerðingar á lífsgæðum og samfélagslegri þátttöku hjá þessu fólki heldur einnig og óhjákvæmilega til aukins álags á heilbrigðiskerfið og til aukinna útgjalda hins opinbera, m.a. hjá Almannatryggingum. Því eru sterk siðferðileg, félagsleg og efnahagsleg rök fyrir því að tryggja sambærilega þjónustu fyrir alla sjúklingahópa sem búa við langvarandi heilsutengdar áskoranir. Byggt á reynslu síðustu ára er ljóst að þessi langvarandi skortur á viðeigandi þjónustu hefur líka dregið úr lífslíkum fjölmargra einstaklinga. Þess vegna verða stjórnvöld að sjálfsögðu alltaf að virða gildandi jafnræðisreglu stjórnarskrár lýðveldisins og lög um heilbrigðisþjónustu og réttindi sjúklinga, sem eiga að tryggja að viðeigandi heilbrigðisþjónusta standi öllum landsmönnum til boða og aðgangur að henni ráðist alltaf af lögmætum og málefnalegum sjónarmiðum. Ég skora því á heilbrigðisráðherra, ríkisstjórnina og Alþingi að beita sér fyrir því að setja þetta mikilvæga verkefni í forgang og án frekari tafa. Ef það er ekki vilji innan núverandi ríkisstjórnar að slík þjónusta verði rekin af hinu opinbera, þá er að sjálfsögðu ekki útilokað að hægt sé að fara sömu leið og flestir aðrir sjúklingahóparnir hafa neyðst til að fara, þ.e. að setja á fót eigin sjálfseignarstofnun sem mun sinna stofnun og rekstri þessarar mikilvægu þjónustu með beinum fjárframlögum frá ríkinu. Í því samhengi verða stjórnvöld hins vegar að horfast í augu við þá staðreynd að það er ekki sjálfgefið að sjúklingar séu alltaf færir um að sinna stofnun og rekstri eigin þjónustu, ekki síst þegar um er að ræða sjúklinga sem flestir eiga erfitt með að sinna hefðbundum athöfnum daglegs lífs. Það að stjórnvöld geri ráð fyrir að það sé þeirra verkefni að stofna viðeigandi endurhæfingarmiðstöð, berjast fyrir nauðsynlegum framlögum frá ríkinu og jafnvel sinna fjáröflunum frá almenningi, er ekki endilega alltaf raunhæf og réttlát nálgun þegar nauðsynleg heilbrigðisþjónusta er annarsvegar. Tökum því nú höndum saman, setjum jafnræðið í forgrunn og gerum það sem er best fyrir þá sem þurfa á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu að halda og styrkjum þannig samfélagið sem eina jákvæða heild. Höfundur er viðskipta- og stjórnsýslufræðingur og fyrrv. bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun