Umræðan

Sóun á al­manna­fé

Erlendur Magnússon skrifar

Í byrjun sumars var Eiðsgrandi malbikaður að nýju. Nú aðeins nokkrum vikum síðar eru þegar komin hjólför í nýja malbikið þannig að í rigningu situr vatn í þeim. Það er ekki hægt að kenna nagladekkjum um þetta slit, eða samspili frosts og þíðu því hvorugu er til að skipta á þessum örfáu vikum sem liðnar eru. Þetta stafar fyrst og fremst af því að notað var mjög ódýrt og lélegt efni í þetta malbik, efni sem mun endast mjög stuttan tíma.

Einn mesti veikleiki opinbers rekstrar er kerfislegi hvatinn til að sýna „ráðdeild“ á stöku ári í stað þess að sýna hagsýni til lengri tíma. Þá er sá leikur mjög svo stundaður að flytja raunverulegan kostnað milli bókhaldslykla/rekstrareininga og klappa sér svo á bakið fyrir að hafa „sparað“ eitthvað sem í raun kemur bara fram í rekstri annarstaðar eða síðar. Þá er mjög vinsælt að stofna til „ódýrra“ fjárfestinga/viðhalds sem líta vel út á pappírnum einstakt ár, en kosta margfalt meira til lengri tíma í meiri rekstrarkostnaði eða ítrekuðu viðhaldi.

Einn mesti veikleiki opinbers rekstrar er kerfislegi hvatinn til að sýna „ráðdeild“ á stöku ári í stað þess að sýna hagsýni til lengri tíma.

Þessi malbikunarframkvæmd á Eiðsgranda nú í sumar er dæmi um heimskulegan „sparnað“ í viðhaldi sem er í raun sóun á almannafé. Kostnaðurinn við að leggja nýtt malbik á götu sem er orðin ónýt liggur í að fræsa upp gamalt malbik, vinnu og tæki við að leggja nýtt malbik, sem og steinefni og tjöru, auk þess að það er óbeinn kostnaður fyrir allt samfélagið vegna röskunar sem verður á samgöngum meðan á framkvæmdum stendur. Ef notast er slitsterkt steinefni í malbik þá getur slíkt yfirborð enst í tvo til þrjá áratugi í stað nokkurra ára (ef svo í þessu tilfelli), ef undirstaðan er góð. Og þó svo að slíkt steinefni sé margfalt dýrara í innkaupum en ódýra efnið sem valið var á Eiðsgranda, þá sparast allir hinir kostnaðarliðirnir margfalt á löngum lífstíma.

Hið opinbera þarf að læra að temja sér hagsýni í stað skammtíma „sparnaðar“.

Höfundur er fjárfestir.




Umræðan

Sjá meira


×