Vakinn klukkan tvö um nótt til að fara í lyfjapróf Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. júlí 2026 11:01 Jonas Vingegaard datt illa í keppninni, daginn eftir að hann var vakinn klukkan tvö um nótt til þess að fara í lyjapróf. Getty/ Dario Belingheri Danski hjólreiðakappinn Jonas Vingegaard endaði fimmtándu dagleið Frakklandshjólreiðanna í sjúkrabíl eftir að hafa dottið illa. Í framhaldinu kom fram í dagsljósið að Vingegaard hafði verið vakinn klukkan tvö um nóttina til að fara í lyfjapróf.
Vingegaard datt þegar rúmir tuttugu kílómetrar voru í mark og hélt um öxlina á svæðinu í kringum viðbeinið. Hann gat ekki komist aftur á hjólið og var að lokum fluttur burt í sjúkrabíl. Vingegaard var síðan fluttur í myndatöku sem staðfesti viðbeinsbrot og nokkra skinnáverka. Daninn fer nú í aðgerð á næstu dögum og hefur lokið keppni í Frakklandshjólreiðunum í ár. Aðfaranótt sunnudags var svefn Danans truflaður þegar hann var vakinn af lyfjaeftirlitsmönnum klukkan tvö. Tadej Pogacar, einn helsti keppinautur hans, sér möguleg tengsl milli truflaðs svefns Vingegaards og fallsins. A replay of the Jonas Vingegaard crash. The end of his 2026 Tour de France. What a shame. I feel for him. It’s so bloody awful. Damn!#TDF2026 pic.twitter.com/WKRPphxmGd— René Bugner (@RNBWCV) July 19, 2026 „Ég fór að hugsa um að við hefðum farið í lyfjapróf í nótt. Hann [Vingegaard] var vakinn klukkan tvö í nótt. Það fékk mig til að hugsa um hvort nótt þar sem svefninn er eyðilagður gæti kannski leitt til þess að maður sé aðeins minna einbeittur. Og nú er túrinn hans svo eyðilagður,“ sagði Pogacar við TV2. „Ég er ekki að segja að það sé ástæðan, en það gæti kannski tengst að einhverju leyti. Það er allavega virkilega sorglegt að sjá hann hætta,“ sagði Pogacar Vingegaard sjálfur vildi ekki útiloka að það væru tengsl, þótt hann væri ekki mikið fyrir að velta því fyrir sér. Tadej Pogacar og Jonas Vingegaard eru miklir keppinautar en líka góðir félagar.Getty/Dario Belingheri „Það er ljóst að það hefur allavega ekki gert neitt gott. Hvort það sé ástæðan þori ég ekki að spá fyrir um. Ég vil ekki kenna því um, því þetta er hjólreiðakeppni og byltur gerast í hjólreiðakeppnum. Svo ég þori ekki að svara því,“ sagði Vingegaard við TV 2 Sport. Marc Reef, íþróttastjóri Visma, liðs Vingegaard, vill ekki ræða slíkar getgátur. „Það er ekki eitthvað sem við eigum að velta fyrir okkur. Við vorum klárir í morgun. Jonas var klár, strákarnir voru klárir og liðið var klárt. Honum leið líka vel á dagleiðinni. Byltan sjálf var meira vegna þess að mótorhjól bremsaði fyrir framan hann. Þetta var undarleg staða og þeir þurftu allir að bremsa. Jonas var sá fyrsti sem datt,“ sagði Reef við TV 2 Sport og aðra fjölmiðla. Tadej Pogacar er í forystu Frakklandshjólreiðanna eftir fimmtán sérleiðir en hann segir að það sé „virkilega sorglegt“ að Jonas Vingegaard hafi hætt keppni. „Síðan 2021 höfum við alltaf barist um sigurinn. Við höfðum kannski ekki besta sambandið í byrjun þegar við kepptum hvor á móti öðrum en síðustu ár höfum við verið samstarfsfélagar sem berum virðingu hvor fyrir öðrum og erum líka eins konar vinir. Túrinn verður ekki samur án hans,“ sagði Pogačar í viðtali við mótshaldara eftir dagleið sunnudagsins. Was a 2am doping control a factor? 🤔Robbie McEwen explains why he believes an overnight doping control may have contributed to the crash that ended Jonas Vingegaard's Tour de France. 😮💨 pic.twitter.com/78ULrobuVI— Cycling on TNT Sports (@cyclingontnt) July 19, 2026
Hjólreiðar Frakklandshjólreiðarnar Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Fótbolti Mikael beittur kynþáttaníði Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Enski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Fleiri fréttir Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Liverpool - Atletico Madrid | Lærisveinar Simone mæta í Bítlaborgina Napoli - Arsenal | Englandsmeistararnir halda til Ítalíu Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Mikael beittur kynþáttaníði Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Er Mourinho búinn að missa það? Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Räikkönen skrifar undir hjá Red Bull Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Tekur á sig gagnrýni svo aðrir fái hana ekki Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Shelton hafði betur gegn Alcaraz í leik sem stóð fram til morguns Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Sjá meira