Handbolti

Unnu síðustu tvo leikina með sam­tals 25 marka mun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslensku leikmennirnir sáttir eftir sigurinn á Rúmeníu í dag.
Íslensku leikmennirnir sáttir eftir sigurinn á Rúmeníu í dag. hsí

Strákarnir í íslenska U-20 ára landsliðinu í handbolta unnu stórsigur á Rúmeníu, 39-26, í lokaleik sínum á EM. Íslendingar lentu í 13. sæti á mótinu.

Íslenska liðið rúllaði yfir Ísrael á föstudaginn, 35-23, og fylgdi því eftir með öðrum stórsigri í dag.

Stefán Magni Hjartarson skoraði sjö mörk fyrir Ísland sem var ellefu mörkum yfir í hálfleik, 21-10.

Alls komust tólf leikmenn Íslands á blað í leiknum í dag. Birgir Leó Stefánsson, Ágúst Guðmundsson og Bessi Teitsson skoruðu fimm mörk hver.

Alexander Ásgrímsson varði tólf skot (fimmtíu prósent) í íslenska markinu og Jens Sigurðarson fimm (26 prósent).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×