Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. júlí 2026 08:13 Tilkynning barst um eldinn um hálf fjögur í gær að staðartíma. AP Slökkviliðið í Drammen hefur náð tökum á eldinum sem geisað hefur í íbúðahverfinu Krokstadelva í útjaðri borgarinnar síðan um miðjan gærdaginn. Fjögur hundruð manns hefur verið gert að rýma svæðið og fleiri en hundrað íbúðir eru gjörskemmdar.
Jan Helge Kaiser, slökkviliðsstjóri í Vestfold, segir að áfram verði barist við eldinn fram eftir degi. Hann skrifar á samfélagsmiðlum í morgun að áfram logi víða í hverfinu og í skóginum umhverfis hann. Samkvæmt umfjöllun norska ríkisútvarpsins eru tólf slökkviliðsbílar í hverfinu og tvær þyrlur. Þar að auki eru fjórar þyrlur til viðbótar á leiðinni á vettvang til að aðstoða við slökkvistorfin. Lögregla er einnig á vettvangi. Ekki hafa borist neinar tilkynningar um íbúa sem er saknað. Tveir hafa verið fluttir á sjúkrahús vegna reykeitrunar og er annar þeirra fulltrúi almannavarna. Slökkviliðsmaður slasaðist einnig lítilháttar og átta lögreglumenn hafa orðið fyrir vægri reykeitrun. „Það má nota orðið hamfarir þegar svona stórbruni verður,“ segir Kjell Arne Hermansen bæjarstjóri í Drammen. Að hans sögn eru um fjögur hundruð manns á lista yfir fólk sem hefur verið gert að rýma heimili sín. Þau dvelja á rýmingarmiðstöð bæjarins á Scandic Hotell Ambassadeur og á öðrum hótelum í bænum. Margir hafa einnig leitað skjóls hjá ættingjum og vinum. Jan Rundtom hjá neyðarlínunni segir í morgun að ekki sé hætta á að eldurinn breiði úr sér til fleiri byggða. Þá sé einnig von á rigningu þegar líður á daginn. Ert þú á staðnum? Við tökum á móti frásögnum, myndum og myndskeiðum á ritstjorn@visir.is
Noregur Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira