Senda norðlenskt rusl úr landi Bjarki Sigurðsson skrifar 27. júlí 2026 22:01 Jón Þórir Frantzson er forstjóri Íslenska gámafélagsins. Vísir/Bjarki Íslenska gámafélagið opnaði fyrr á árinu stóra endurvinnslustöð á Akureyri þaðan sem sorp, sem áður var urðað, er sent til húsaupphitunar í Danmörku. Þá er gler notað í malbik.
Akureyringar hafa í gegnum árin þótt skara fram úr við flokkun rusls. Það sem ekki er hægt að flokka var þó alltaf urðað við Stekkjarvík, sem er grátlegt að mati Jóns Þóris Frantzsonar, forstjóra Íslenska gámafélagsins. „Að setja ruslið í jörð er úrelt og gamaldags hugsun. Hugmyndin er að flytja ruslið beint héðan frá Akureyri út til Danmerkur eða Svíþjóðar. Þar getum við nýtt flutninginn á þeim gámum sem fluttir eru til landsins og fóru áður tómir heim. Við getum fyllt þá af þessum arinkubbum og þar getum við hlýjað fólki. Þar getur það brennt ruslið í sínum brennslum og framleitt bæði rafmagn og hita,“ segir Jón. Fyrsti áfangi endurvinnsluþorps félagsins á Akureyri var tekinn í notkun fyrir skömmu. Þar er til að mynda gler endurnýtt á framandi máta. Í klippunni hér fyrir neðan má sjá þessa endurvinnsluaðferð. Glerið er brotið niður og því blandað við malbik. Um 23 prósent malbiksins er glersalli og þegar yfirborðið fer að slítast glitrar það. Glerið var áður urðað og malbikið blandað með sandi úr námum. Jón bendir á að jörðin okkar sé takmörkuð auðlind. „Í dag erum við enn að urða fjörutíu til sjötíu tonn af rusli um land allt. Þetta er bara til skammar fyrir þjóð sem stærir sig af landinu sínu,“ segir Jón.
Sorphirða Akureyri Umhverfismál Danmörk Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Sjá meira