Handbolti

Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ferð Benedikts Gunnars Óskarssonar út á golfvöll reyndist örlagarík.
Ferð Benedikts Gunnars Óskarssonar út á golfvöll reyndist örlagarík. vísir/ívar

Handboltamaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson óttaðist hið versta þegar hann missti máttinn í hægri hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið í sumar. Hann er óðum að endurheimta hreyfigetu í hendinni, er í endurhæfingu og kveðst bjartsýnn á að geta snúið aftur á völlinn á næstunni.

Eftir að hafa orðið Noregsmeistari með Kolstad í vor samdi Benedikt við danska liðið Team Tvis Holstebro sem Arnór Atlason þjálfar.

Meðan hann var hér á landi í sumarfríi skellti Benedikt sér í golf. Ferðin út á golfvöll dró dilk á eftir sér.

„Já, ég var í golfi með vinum mínum og þegar ég á eina holu eftir fæ ég golfkúlu í hausinn, hérna ofan á hausinn og missi strax mátt í hægri hendinni. Það var helvíti óþægilegt,“ sagði Benedikt í samtali við íþróttadeild.

Ískur úti um allt

Benedikt segist strax hafa haft áhyggjur af hendinni þar sem hann lá á golfvellinum. 

„Það er bara ískur úti um allt þegar maður er nýbúinn að fá golfbolta í hausinn. Þegar maður liggur þarna og vonast maður til að þetta lagist. Svo var maður auðvitað hræddur um hendina. Það var meira það sem ég hugsaði,“ sagði Benedikt sem höfuðkúpubrotnaði þegar hann fékk golfkúluna í höfuðið.

„Það var bara það fyrsta sem ég hugsaði eiginlega um, að ég missti allan mátt í allri hendinni og fann ekki fyrir henni, þannig að það var mjög óþægilegt.“

Var í fjóra daga á spítala

Benedikt segir að um algjöra ólukku hafi verið að ræða.

„Þetta er bara algjört óhappadæmi. Maður hefur ekki heyrt mikið af þessu auðvitað. Hún var bara tuttugu metra frá mér eða eitthvað og er bara að „drive-a“ sjálf á sinni holu og ég bara fæ þetta beint í hausinn á meðan ég er sjálfur að fara að slá mitt högg. Ég fór bara með sjúkrabíl upp á spítala og er þar í fjóra daga. Svo fór ég heim,“ sagði Benedikt.

Benedikt Gunnar Óskarsson varð tvívegis norskur meistari með Kolstad.kolstad

Hann náði stórum áfanga í þessari viku þegar hann gat rétt úr öllum fingrum hægri handar.

„Ég var að geta rétt úr puttunum í fyrsta skipti fyrir svona tveimur dögum. Það var mikill sigur fannst mér þá. Svo er ég bara þrisvar í viku í endurhæfingu á Grensás sem hjálpar mér mikið.“

Fór á vonda staði í hausnum

Hann segir að hugurinn hafi reikað á óþægilega staði eftir óhappið á golfvellinum.

„Ég næ ekki mikið að hugsa hana þegar ég ligg þarna en þegar ég er að tala við lækna og sérfræðingana eftir þetta og þeir geta ekki lofað manni að hendin komi hundrað prósent til baka fer maður auðvitað á vonda staði í hausnum. En svo þarf maður bara að vera bjartsýnn,“ sagði Benedikt.

Benedikt með eldri bróður sínum, Arnóri Snæ, á landsliðsæfingu.Instagram/@hsi_iceland

Hann kveðst vongóður að ná fyrri styrk og geta byrjað að spila handbolta á nýjan leik.

„Jájá, ég er það alveg. Mér líður alltaf betur með hverjum deginum og hendin kemur hægt og rólega. Ég er mjög bjartsýnn,“ sagði Benedikt.

Pabbi hringdi í Arnór

Sem fyrr sagði var Benedikt nýbúinn að semja við Holstebro þegar hann lenti í óhappinu á golfvellinum. Hann segir að Arnór og aðrir hjá danska félaginu hafi sýnt honum mikinn skilning.

„Símtalið var tekið fyrir mig fyrst þegar ég lá á spítalanum. Þá hringdi pabbi [Óskar Bjarni Óskarsson] í hann [Arnór] fyrir mig. Þeir segja bara að þetta sé auðvitað bara óhappadæmi og maður geti ekkert stjórnað þessu. Þeir sögðu bara að þeir muni hjálpa mér í þessu eins mikið og þeir gætu og vildu að ég myndi vera hérna heima þangað til ég myndi ná einhverri bætingu,“ sagði Benedikt.

Benedikt afrekaði það að skora sautján mörk í bikarúrslitaleik Vals og ÍBV 2024.vísir/hulda margrét

Hann hlakkar til að spila með Holstebro þar sem fyrir er, auk Arnórs, örvhenta skyttan Jóhannes Berg Andrason.

„Ég er ennþá mjög spenntur fyrir því og held að þetta sé frábært skref fyrir mig,“ sagði Benedikt.

Hann segir að óhappið á golfvellinum sýni hversu stutt er oft á milli í lífinu.

„Jú, þetta lætur mann vera, ég veit það ekki, meira einhvern veginn þakklátan þegar maður getur gert allt. Ég held að þetta muni bara hjálpa manni þegar þetta lagast allt og maður er líklega bara þakklátur fyrir allt sem maður getur gert,“ sagði Benedikt að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×