Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Árni Sæberg skrifar 15. júlí 2026 13:24 Blaðamaður náði skjáskoti úr myndskeiðinu áður en því var eytt. Vísir Fulltrúa samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, varð á í messunni í myndskeiði á Instagram þegar hann sagði mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Myndskeiðinu hefur nú verið eytt.
Í myndskeiðinu sagði Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, frá því að hún hefði búið í Svíþjóð og fundist hún fá meira fyrir laun sín þar en á Íslandi, þó að þau væru vissulega lægri þar en hér. Því hefði hún ákveðið að bera saman lágmarkslaun á Íslandi og í Svíþjóð, miðað við það hversu marga lítra af mjólk mætti kaupa fyrir laun eins dags. Þannig gaf hún sér að lágmarkslaun hér væru 15.000 krónur á dag en 11.500 krónur í Svíþjóð. Þá sagði hún að mjólkurlítrinn hér kostaði 380 krónur en 183 krónur í Svíþjóð og þannig mætti kaupa aðeins 39 mjólkurfernur fyrir ein íslensk lágmarksdagslaun en heilar 63 í Svíþjóð. Loks reiknaði hún út að kaupa mætti 62 prósent meiri mjólk fyrir dagskaupið í Svíþjóð en á Íslandi. 234 krónur, ekki 380 Sá hængur er helst á útreikningi Margrétar Rósar að samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ er hvergi hægt að kaupa lítra af venjulegri mjólk í verslun á Íslandi á 380 krónur. Samkvæmt eftirlitinu kostar lítri af bæði ný- og léttmjólk 234 krónur í Bónus. Fyrir 15.000 krónur mætti þannig kaupa 64 mjólkurfernur, ekki 39. Til samanburðar kostar lítri af nýmjólk í lágvöruverðsversluninni Lidl í Svíþjóð 147 krónur, talsvert minna en í dæmi Margrétar Rósar. Fyrir 11.500 króna sænsk lágmarksdagslaun mætti þannig kaupa 78 mjólkurfernur. Það gerir 22 prósent meiri mjólk en á Íslandi. Eyddu myndskeiðina eftir að fjallað var um það Fosvarsmenn SJÁ virðast hafa áttað sig á mistökunum þar sem myndskeiðinu hefur nú verið eytt af Instagramsíðu samtakanna. Það var gert eftir að Viðskiptablaðið fjallaði um málið og setti í samhengi við hið þekkta mjólkurfernupróf, sem margur stjórnmálamaðurinn hefur fallið á í gegnum tíðina. Myndskeiði má sjá að neðan.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Verðlag Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira