Sport

FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli

Sindri Sverrisson skrifar
FH-ingar eiga titil að verja í bikarkeppninni en staðan er spennandi eftir fyrri daginn.
FH-ingar eiga titil að verja í bikarkeppninni en staðan er spennandi eftir fyrri daginn. FRÍ

FH er í góðri stöðu eftir fyrri keppnisdag í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands en ÍR er þó ekki langt undan. ÍR er naumlega yfir í stigakeppni karla og fagnaði einnig sigri í bikarkeppni 15 ára og yngri.

Keppt var í 18 greinum í bikarkeppni fullorðinna í dag, 9 greinum karla og 9 greinum kvenna, og hið sama verður gert á morgun áður en bikarmeistarar verða krýndir, á velli ÍR-inga í Breiðholti.

Þökk sé góðum árangri FH-kvenna í dag þá er liðið með 6,5 stiga forystu í heildarstigakeppninni en hún getur verið fljót að fuðra upp á morgun. Sex lið eru í keppninni og því fást sex stig fyrir sigur í hverri grein, fimm stig fyrir 2. sæti og þannig koll af kolli.

Staðan eftir fyrri dag í bikarkeppni FRÍ:

Heildarkeppni:

  1. FH 85
  2. ÍR 78,5
  3. Fjölnir 64,5
  4. Ármann 49
  5. Breiðablik 42
  6. ÍR B 21

Stigakeppni kvenna:

  1. FH 43
  2. Fjölnir 36
  3. ÍR 36
  4. Ármann 19
  5. Breiðablik 14
  6. ÍR B 11

Stigakeppni karla:

  1. ÍR 42,5
  2. FH 42
  3. Ármann 30
  4. Fjölnir 28,5
  5. Breiðablik 28
  6. ÍR B 10

Á meðal afreka einstaklinga má nefna að Christina Alba Marcus Hafliðadóttir vann 100 metra hlaup kvenna og sótti einnig fjögur stig í langstökki. Þá var María Rún Gunnlaugsdóttir afar öflug fyrir ÍR og náði samtals í 14 stig en hún vann 100 metra grindahlaupið, varð í 2. sæti í spjótkasti og í 4. sæti í stangarstökki.

Öll úrslit úr mótinu má sjá með því að smella hér.

Í bikarkeppni 15 ára og yngri fögnuðu ÍR-ingar öruggum sigri en liðið hlaut samtals 109 stig. Næst á eftir kom sameinað lið HHF-HSK/Selfoss-A sem hlaut 85 stig en baráttan um bronsverðlaunin var ógurlega spennandi. Breiðablik, FH og Ármann hlutu öll 76 stig en Breiðablik vann flestar greinar af þessum liðum og hlaut bronsverðlaunin.

ÍR vann þrefalt í bikarkeppni 15 ára og yngri því liðið vann bæði pilta- og stúlknakeppnina. Öll úrslit frá mótinum má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×