Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 12:34 Á meðan Sepp Blatter sat á forsetastóli FIFA var hann ítrekað sakaður um spillingu. getty/Sathiri Kelpa Sepp Blatter, fyrrverandi forseti FIFA, segir ótækt að pólitískum brögðum sé beitt til að breyta úrskurðum eins og virðist hafa verið gert í tilfelli bandaríska framherjans Folarins Balogun.
Í gær gaf FIFA það út að Balogun gæti spilað leik Bandaríkjanna og Belgíu í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins, þrátt fyrir að hann hafi fengið rauða spjaldið í leiknum gegn Bosníu í 32-liða úrslitunum. Leikbann Baloguns var gert skilorðbundið til eins árs. Eftir að þessi ákvörðun FIFA lá fyrir lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseti ánægju sinni með hana. Stórir fjölmiðlar hafa einmitt fullyrt að Trump hafi haft samband við vin sinn, Gianni Infantino, forseta FIFA, og fengið hann til að toga í spotta svo Balogun gæti spilað gegn Belgíu í nótt. Nú hefur forveri Infantinos á forsetastóli FIFA, sjálfur Sepp Blatter, stigið fram og gagnrýnt ákvörðun Alþjóða knattspyrnusambandsins að leyfa Balogun að spila. „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum. Þeim er snúið við með reglum, sönnunargögnum og óháðum aðilum,“ skrifaði Blatter á X. „Ef Bandaríkjaforseti hefur afskipti af forseta FIFA, og leikmaður er skyndilega sýknaður fyrir leik í útsláttarkeppni á HM, er spurningin óumflýjanleg: Quo vadis [hvert stefnir þú], FIFA? Fótbolti má aldrei verða leikvöllur pólitískra valda.“ Red cards are not overturned by political phone calls. They are overturned by rules, evidence and independent bodies. If a U.S. President intervenes with the FIFA President — and a player is suddenly cleared before a World Cup knockout match — the question is unavoidable: Quo…— Joseph S Blatter (@SeppBlatter) July 6, 2026 Blatter hætti sem forseti FIFA 2015 þegar hann var dæmdur í átta ára bann frá fótbolta. Bannið var stytt niður í sex ár en siðanefnd FIFA úrskurðaði Blatter svo í annað sex ára bann 2021. Margir hafa fordæmt ákvörðun FIFA varðandi leikbann Baloguns. Evrópska knattspyrnusambandið sendi meðal annars frá sér harðorða yfirlýsingu í dag. „Við lýsum yfir vantrú okkar á slíkri fordæmalausri, óskiljanlegri og óréttlætanlegri ákvörðun,“ segir í niðurlagi yfirlýsingar UEFA. Rudi Garcia, þjálfari belgíska landsliðsins, mótherja Bandaríkjanna í nótt, lýsti einnig yfir undrun sinni á ákvörðun FIFA. „Ég vissi ekki að 5. júlí væri 1. apríl; það eru nýjar fréttir fyrir mér. Hugsanir okkar og skoðanir koma fram í yfirlýsingunni – við erum að verja fótboltann; þetta er í fyrsta sinn í sögu heimsmeistaramótsins sem þessi ákvörðun er tekin,“ sagði Garcia á blaðamannafundi í gær. Balogun hefur skorað þrjú mörk fyrir Bandaríkin á HM og er markahæsti maður liðsins á mótinu. Hann leikur með Monaco í Frakklandi en var lengi á mála hjá Arsenal. Hinn 25 ára Balogun hefur skorað tólf mörk í þrjátíu leikjum fyrir bandaríska landsliðið.
HM 2026 í fótbolta FIFA Tengdar fréttir Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira
Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess. 6. júlí 2026 08:01