Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. júlí 2026 08:01 Þrátt fyrir að hafa fengið rautt spjald í leiknum gegn Bosníu getur Folarin Balogun, framherji bandaríska fótboltalandsliðsins, spilað leikinn gegn Belgíu. getty/David M. Barreda Gary Neville hefur gagnrýnt ákvörðun FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gerir bandaríska framherjanum Folarin Balogun kleift að spila næsta leik liðsins á HM, þrátt fyrir að hann hafi fengið rautt spjald í síðasta leik þess.
Balogun fékk rauða spjaldið í 2-0 sigri Bandaríkjanna á Bosníu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Að öllu eðlilegu hefði hann átt að missa af leik Bandaríkjanna gegn Belgíu í nótt. En eftir að FIFA gerði brottvísunina skilorðsbundna getur Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska liðsins, teflt Balogun fram gegn Belgíu. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir ánægju sinni með ákvörðun FIFA í gær. „Takk til FIFA fyrir að gera hið rétta og snúa við þessu grófa óréttlæti,“ skrifaði Trump á Truth Social. Belgar eru hins vegar allt annað en sáttir með þessar vendingar í máli Baloguns. „Ég vissi ekki að 5. júlí væri 1. apríl; það eru nýjar fréttir fyrir mér. Hugsanir okkar og skoðanir koma fram í yfirlýsingunni – við erum að verja fótboltann; þetta er í fyrsta sinn í sögu heimsmeistaramótsins sem þessi ákvörðun er tekin,“ sagði Rudi Garcia, þjálfari belgíska liðsins, á blaðamannafundi í gær. Neville starfar sem álitsgjafi hjá iTV meðan á heimsmeistaramótinu stendur og aðspurður um ákvörðun FIFA sagði hann ekki allt með felldu. „Það er skítafýla af þessu,“ sagði Neville. „Mér fannst þetta ekki vera rautt spjald og tel að það ætti að vera ferli þar sem hægt verður að breyta ákvörðuninni. En það er ekkert ferli og einhverra hluta vegna ákveður FIFA upp úr þurru að leyfa leikmanninum að spila. Reglurnar ættu að vera eins fyrir alla.“ Neville segist skilja reiði Belga. „Ég myndi vera algjörlega brjálaður ef ég væri Belgía og öllum öðrum liðum á mótinu sem hafa átt leikmenn sem hafa verið reknir út af finnst þetta eflaust ósanngjarnt. En veistu hvað, erum við hissa? Nei, ekki með þetta lið,“ sagði Neville. Balogun hefur skorað þrjú mörk á HM og er markahæsti leikmaður bandaríska liðsins á mótinu. Bandaríkin og Belgía eigast við í sextán liða úrslitum í Seattle en leikurinn hefst á miðnætti.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira