Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. júlí 2026 11:57 Óhætt er að segja að um stórt skref sé að ræða en löggjöf Færeyja um þungunarrof hefur verið ein sú strangasta í Evrópu. Getty Ný lög um þungunarrof tóku gildi á miðvikudaginn síðastliðinn í Færeyjum. Fyrri lög voru ein þau ströngustu í Evrópu en nýju lögin eru afar umdeild og naumt var á milli þegar lögin voru samþykkt í desember síðasta árs.
Með nýjum lögum, sem tóku gildi á miðvikudaginn 1. júlí, rýmka reglur um þungunarrof þannig að það verði heimilt fram að þrettándu viku meðgöngu. Samkvæmt gömlu lögunum var það óheimilt, nema þegar um er að ræða þungun í kjölfar nauðgunar eða sifjaspells, eða þegar líf móðurinnar eða heilbrigði fóstursins hefur verið talið í hættu. Lögin voru naumlega samþykkt 4. desember 2025 en sautján þingmenn voru fylgjandi frumvarpinu en sextán andvígir því. Mannréttindasamtökin Amnesty International í Færeyjum fagna gildistöku nýju laganna og segja hana vera „stóran mannréttindasigur fyrir Færeyjar.“ Með nýju lögunum sé líkamlegt sjálfræði kvenna virt og konur hafi nú rétt til að taka ákvarðanir um eigið kyn- og frjósemislíf og framtíð. Konur losni við þá kvöð að laumast innan heilbrigðiskerfisins eða fara erlendis til að fara í það þungunarrof sem þær þurfi, segir í tilkynningu frá Amnesty í Færeyjum. „Í dag fögnum við því að vinnunni við að uppfæra lögin er lokið og að nýju lögin hafa tekið gildi í dag. Þökk sé einstaklingum, samtökum og stjórnmálamönnum, sem hafa unnið þrotlaust að þessum réttindum, höfum við í dag tekið þetta stóra skref. Í dag heiðrum við einnig þær konur sem hafa stigið fram og barist gegn skömminni, þögninni og fordómunum,“ er haft eftir Turiði Mariu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Amnesty í Færeyjum. Bjørk Sadembou, formaður samtakanna Pro Vita sem eru andvíg þungunarrofi, lýsir deginum sem sorgardegi og segir: „Við ætlum að halda áfram þeirri vinnu að fá Færeyinga til þess að líta á fóstur sem börn,“ að sögn Kringvarpsins. Óhætt er að segja að um stórt skref sé að ræða en löggjöf Færeyja um þungunarrof hefur verið ein sú strangasta í Evrópu. Þar er einnig kveðið á um að konur megi gangast undir þungunarrof ef þær eru taldar óhæfar mæður, en það þurfa læknir og nefnd að staðfesta.
Færeyjar Þungunarrof Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira