Viðskipti innlent

Sam­keppnis­eftir­litið hafi valið fram­setningu sem vekur grun­semdir

Eiður Þór Árnason skrifar
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Bjarni Benediktsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg

Samtök atvinnulífsins og Samtök verslunar og þjónustu gera alvarlega athugasemd við vinnubrögð Samkeppniseftirlitsins (SKE) í umræðu um matvöruverslanir og olíufélög. Þá gagnrýna þau að forstjóri stofnunarinnar hafi tekið undir málflutning Félags íslenskra bifreiðaeigenda og Alþýðusambands Íslands.

Að mati samtakanna vekja tvö nýleg umræðuskjöl SKE, annars vegar um verð í matvöruverslunum og hins vegar um eldsneytismarkað, upp alvarlegar spurningar um það hvernig eftirlitið sinni lögbundnu hlutverki sínu.

Í umræðuskjali SKE um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25 prósent að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi.

„Umræðuskjölin bera þess merki að Samkeppniseftirlitið hafi á köflum valið framsetningu sem vekur grunsemdir um háttsemi fyrirtækja áður en rannsókn er lokið. Þótt eftirlitið kalli skjölin umræðuskjöl eru þar settar fram staðhæfingar og vísbendingar sem geta haft veruleg áhrif á orðspor fyrirtækja áður en þau hafa fengið endanlegt tækifæri til að tjá sig,“ segir í yfirlýsingu SA og SVÞ.

Gagnrýna samtökin að í báðum umræðuskjölunum séu settar fram sterkar ályktanir um markaðshegðun, framlegð og samkeppni „þótt eftirlitið viðurkenni sjálft að rannsóknir séu enn í gangi, frekari gögn og skýringar liggi ekki fyrir og samanburður við önnur ríki sé háður verulegum fyrirvörum.“

Eigi ekki að staðfesta fullyrðingar hagsmunaaðila

SA og SVP segja það alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafi í fjölmiðlum lýst því yfir að efni umræðuskjalanna styðji málflutning hagsmunasamtaka á borð við FÍB og ASÍ.

„Slík ummæli vekja óhjákvæmilega þá spurningu hvort ferli umræðuskjalsins sé raunverulega opið eða hvort niðurstaðan hafi í reynd verið mótuð áður en umsagnir markaðsaðila hafa verið metnar. Hlutverk sjálfstæðs samkeppnisyfirvalds er að leggja sjálfstætt og hlutlægt mat á gögn, ekki að staðfesta fyrirfram framkomnar fullyrðingar einstakra hagsmunaaðila.“

Þá segja hagsmunasamtökin að Samkeppniseftirlitið hafi í samanburði sínum við erlenda markaði ekki gert nógu vel grein fyrir öðrum mögulegum skýringum á verðþróun, á borð við smæð markaðar, launakostnað, flutningskostnað, innkaupasamninga, birgðahald eða aðra kostnaðarþætti.

„Það eitt að verð á Íslandi sé hátt eða hækki hraðar en annars staðar sýnir ekki sjálfkrafa fram á að orsökin sé skortur á samkeppni. Slíkar ályktanir krefjast mun ítarlegri hagfræðilegrar greiningar en fram kemur í skjölunum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×