Forveri Freys tekur við af honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2026 11:00 Eirik Horneland lætur hér heyra í sér á hliðarlínunni á tíma sínum sem þjálfari Saint-Etienne. Getty/Marcio Machado Brann hefur fundið eftirmann Freys Alexanderssonar í þjálfarastól félagsins og forráðamenn Brann leituðu til manns sem þeir þekkja vel.
Eirik Horneland skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning um að þjálfa Brann. Horneland var þjálfari Brann frá 2021 til 2024 en tók síðan við franska félaginu Saint-Étienne. Brann réði Frey í staðinn en það ævintýri endaði síðan óvænt á dögunum þegar íslenski þjálfarinn var látinn taka pokann sinn. Horneland var látinn fara frá Saint-Étienne í janúar og entist því bara rúmlega eitt ár í því starfi. Hann var því laus mála og Brann er að endurheimta þjálfara sem gerði félagið að bikarmeisturum auk þess að liðið vann einnig silfur í deildinni. „Sá sem bíður eftir einhverju góðu bíður ekki til einskis,“ sagði Arild Mjøs Andersen, stjórnarformaður Brann, við norska ríkisútvarpið en félagið tók sinn tíma í að finna eftirmann Freys. Eftir aðeins eitt og hálft ár fjarri félaginu er ljóst að Horneland snýr aftur til Brann. „Hann var alltaf okkar fyrsti kostur í starfið. Hann kveikti í hjörtum okkar. Hann er mjög reyndur og fær þjálfari sem fær það besta út úr fólki,“ sagði Andersen. „Það er ánægjulegt að vera kominn aftur. Það verður allt gefið í botn frá fyrstu sekúndu,“ sagði Horneland.
Norski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira