Slæmur skellur gegn Spáni en mun betri seinni hálfleikur Ágúst Orri Arnarson skrifar 1. júlí 2026 16:53 Stelpurnar okkar náðu ekki að klukka þær spænsku í fyrri hálfleik en sýndu betri frammistöðu í seinni hálfleik. Judit Cartiel - UEFA/UEFA via Getty Images Stelpurnar okkar fengu slæman 4-0 skell gegn Spáni í öðrum leik Evrópumóts U19 landsliða. Öll fjögur mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik en mun betra var að sjá til íslenska liðsins í seinni hálfleik.
Ljóst var löngu fyrir leik að verkefni dagsins, gegn ríkjandi meisturum síðustu fjögurra Evrópumóta U19, yrði erfitt. Ekkert annað kom á daginn þegar leikurinn hófst og Spánn var með yfirburði frá upphafi. Fjögur spænsk mörk í fyrri hálfleik Eftir að hafa ógnað íslenska markinu ítrekað fyrstu fimmtán mínúturnar náðu Spánverjar að setja tvö mörk fyrir vatnspásuna um miðjan fyrri hálfleik. Liðsfélagarnir hjá Barcelona, Celia Segura og Rosalía Domínguez, sáu um að setja boltann í netið á 19. og 23. mínútu. Domínguez hélt áfram að ógna á vinstri vængnum eftir vatnspásu og skoraði sitt annað mark, þriðja mark Spánar, á 30. mínútu. Alba Cerrato, leikmaður Sevilla, sá svo um að setja fjórða markið rétt fyrir hálfleik. Greinilegt var að stelpurnar okkar voru ósáttar með sjálfa sig þegar þær hentu sér í harkalegar tæklingar og brutu fast á Spánverjunum á lokamínútum fyrri hálfleiks. Spánverjarnir svöruðu í sömu mynt og bæði lið fengu að líta gult spjald áður en lokaflaut fyrri hálfleiks gall. Svöruðu vel fyrir sig í seinni hálfleik Mun betra var að sjá til íslenska liðsins eftir endurstillingu í hálfleik. Stelpunum okkar tókst að halda stöðunni markalausri í seinni hálfleik og þó þær hafi ekki ógnað mikið á hinum endanum var sóknarleikurinn sprækari. Spænska liðið var líka meðvitað um að það þyrfti að sækja úrslit í næsta leik gegn Austurríki. Þjálfarinn ákvað því að gefa nokkrum lykilleikmönnum hvíld í seinni hálfleik, með skiptingum sem hægðu svolítið á þeirra spili. Lítill æsingur var á lokamínútunum. Sóley Edda Ingadóttir þurfti að henda sér í eina rennitæklingu á ögurstundu en annars fjaraði leikurinn nokkuð rólega út. Ísland fer ekki í undanúrslit en á séns á HM Eftir tapið í dag og 3-0 tapið gegn Austurríki á sunnudag á Ísland ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitum mótsins. Spánn getur tryggt toppsætið í riðlinum með sigri gegn Austurríki þegar lokaumferð riðlakeppninnar fer fram á laugardag. Hinumegin eru Þýskaland og Svíþjóð búin að tryggja sér í undanúrslitum. Ísland mun hins vegar spila úrslitaleik við Sviss upp á þriðja sætið í riðlinum. Þriðja sætið gefur þátttökurétt í umspili fyrir HM.
Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira