FIFA bannaði Frökkum að bera sorgarbönd vegna móður Deschamps Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2026 22:19 Didier Deschamps stýrði ekki franska landsliðinu í sigrinum á Noregi í kvöld. Getty/Hannah Peters Franska knattspyrnusambandið sagði blaðamönnum fyrir leik Frakklands og Noregs í kvöld að mínútu þögn til minningar um látna móður Didier Deschamps. Það varð þó ekki af því.
Deschamps var ekki á hliðarlínunni þar sem útför móður hans fer fram í Frakklandi á þriðjudag. Aðstoðarþjálfarinn Guy Stephan stýrði franska liðinu í 4-1 sigri á Noregi. Nokkrum mínútum síðar sendi franska sambandið hins vegar frá sér skýringu eftir að FIFA hafði tilkynnt því að þögnin hefði verið fyrir fram ákveðin til heiðurs fórnarlömbum jarðskjálftans í Venesúela. Beiðni Frakka um að bera svört sorgarbönd til heiðurs móður Deschamps var einnig hafnað af FIFA, að sögn franska sambandsins. From @TheAthletic: France’s request to wear black armbands in honour of head coach Didier Deschamps’s mother was declined by FIFA, the French Football Federation said. https://t.co/CZhAowyhvJ— The New York Times (@nytimes) June 26, 2026 Deschamps, sem hefur orðið heimsmeistari bæði sem leikmaður og þjálfari, hefur stýrt landsliðinu síðastliðin fjórtán ár. „Það var með mikilli sorg sem landsliðsþjálfarinn frétti í morgun af andláti móður sinnar,“ sagði franska sambandið í yfirlýsingu á þriðjudag. „Í samráði við Philippe Diallo, forseta franska knattspyrnusambandsins, sem er viðstaddur í æfingabúðum franska landsliðsins, hefur Didier Deschamps falið aðstoðarmanni sínum, Guy Stephan, að stýra hópnum þar til hann snýr aftur. Á þessum afar sársaukafullu tímum biðjum við um fyllstu virðingu og nærgætni.“ Deschamps er einn af þeim þjálfurum í alþjóðlegum fótbolta sem hafa verið lengst í starfi en hann var ráðinn árið 2012. Lið hans vann heimsmeistaratitilinn árið 2018 og komst í úrslitaleikinn fyrir fjórum árum í Katar. Frakkar eru eitt af sigurstranglegustu liðunum á HM og vann liðið alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni.
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira