Körfubolti

Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Giannis Antetokounmpo treður boltanum í körfuna með tilþrifum í leik með Milwaukee Bucks.
Giannis Antetokounmpo treður boltanum í körfuna með tilþrifum í leik með Milwaukee Bucks. Getty/Patrick McDermott/

NBA-körfuboltafélagið Milwaukee Bucks hefur samþykkt að skipta goðsögninni Giannis Antetokounmpo til Miami Heat en þetta eru ein stærstu leikmannaskiptin í sögu deildarinnar.

Giannis er til Heat ásamt Bobby Portis fyrir Tyler Herro, Kel'el Ware, Jaime Jaquez Jr. og Kasparas Jakucionis, þrjá valrétti í fyrstu umferð (þar á meðal 13. valrétt í nýliðavali NBA í kvöld), einn skiptirétt á valrétti og einn valrétt í annarri umferð, að því er heimildarmenn ESPN herma.

Heat sendi til Milwaukee óvarða valrétti í fyrstu umferð árin 2031 og 2033 ásamt 13. valréttinum, skiptirétti á valrétti árið 2030 og valrétti í annarri umferð árið 2033, samkvæmt sömu heimildum.

Skiptin ná ekki til neinna annarra liða en bæði Heat og Bucks munu ganga frá samningnum 6. júlí, sem gefur svigrúm til að kanna hvort tækifæri gefist til að stækka hann með samningum við önnur félög. Í júní síðastliðnum samþykktu Phoenix Suns og Houston Rockets samning sem á endanum varð að sögulegum sjö liða skiptum.

Forseti Heat, Pat Riley, landar nú langþráðri risastjörnu, en Antetokounmpo bætist í hóp úrvalsleikmanna sem Miami hefur fengið til sín á síðustu 30 árum, á borð við LeBron James, Shaquille O'Neal, Chris Bosh, Alonzo Mourning og Jimmy Butler. Riley mun para saman tvöfaldan verðmætasta leikmann NBA-deildarinnar og verðmætasta leikmann úrslitakeppninnar 2021 við Bam Adebayo til að leiða baráttuna í Austurdeildinni.

Antetokounmpo var í þrettán keppnistímabil í Milwaukee, þar sem hann þróaðist úr því að vera hár og renglulegur nýliði sem fáir þekktu í að safna að sér viðurkenningum. Hann var valinn tíu sinnum í stjörnuliðið, tvisvar sinnum verðmætasti leikmaðurinn og varnarmaður ársins árið 2020.

Giannis leiddi Milwaukee til fyrsta meistaratitils liðsins í fimmtíu ár þegar Bucks vann titilinn 2021. Þá var hann valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar með 35,2 stig, 13,2 fráköst, 5,0 stoðsendingar, 1,2 stolna bolta og 1,8 varin skot að meðaltali í leik í úrslitaeinvíginu. Með því afreki varð hann eini leikmaðurinn í sögu NBA til að hafa verið valinn fimm sinnum í stjörnuliðið, fimm sinnum í úrvalslið deildarinnar, tvisvar sinnum verðmætasti leikmaðurinn, verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar og varnarmaður ársins fyrir 27 ára afmælisdaginn sinn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×