Innherji

For­seti Akademias fyrstur Ís­lendinga til að vera kjörinn heiðurs­félagi EURAM

Ritstjórn skrifar
Alessandro Zattoni, forseti EURAM, og Eyþór Ívar Jónsson, forseti Akademias. 
Alessandro Zattoni, forseti EURAM, og Eyþór Ívar Jónsson, forseti Akademias. 

Eyþór Ívar Jónsson, forseti fræðslufyrirtækisins Akademias, hefur verið kjörinn heiðursfélagi í fræðasamtökunum European Academy of Management (EURAM). Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur hlýtur þessa viðurkenningu, en þau eru veitt fræðimönnum sem skilað hafa framúrskarandi framlagi til stjórnunar- og viðskiptafræði í Evrópu.

EURAM-samtökin voru stofnuð árið 2001 og vinna að því að efla rannsóknir, kennslu og samfélagslega umræðu um stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, stjórnarhætti og tengd svið. Eyþór hefur gegnt fjölmörgum leiðtogahlutverkum innan samtakanna og verið í framkvæmdastjórn þeirra í átta ár.

„Ferill hans endurspeglar fyllilega allt það sem EURAM stendur fyrir. Framúrskarandi framlag hans felst sérstaklega í samþættingu fræðistarfa, forystu innan stofnana, stjórnendamenntunar, frumkvöðlastarfs, stjórnarhátta og samfélagslega þátttöku. Það er mitt mat að samstarfsmaður okkar, Eyþór Ívar Jónsson, sé fulltrúi þeirrar ábyrgu og hagnýtu fræðimennsku sem EURAM metur mikils og viðurkennir meðal sinna heiðursfélaga,“ segir Kathrin M. Möslein, fyrrverandi forseti EURAM í tilkynningu.

Eyþór hefur um árabil unnið að því að tengja þekkingu við framkvæmd í atvinnulífinu, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Í gegnum störf sín við Copenhagen Business School, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Seed Forum International, World Business Angel Investment Forum, Klak, Akademias, BAM og EURAM hefur hann byggt brýr milli fræðasamfélags, atvinnulífs og menntunar þvert á landamæri.

Eyþór er stofnandi og eigandi Akademias sem hefur byggt upp vettvang fyrir stjórnendamenntun, símenntun og vinnustaðaskóla. Hann hefur skrifað hundruð greina um viðskipti, efnahagsmál, nýsköpun og stjórnarhætti, meðal annars á vettvangi Innherja.


Tengdar fréttir

Stórir draumar eru mikilvægir en ekki nóg

Smæðin hefur sjaldan fengið að vera afsökun á Íslandi. Við höfum frekar hagað okkur eins og hún sé áskorun sem beri að yfirstíga. Það er ekki sjálfgefið. Margar litlar þjóðir læra að laga væntingar sínar að stærðinni. Við höfum oftar gert hið gagnstæða og hagað okkur eins og stærðin segi ekki alla söguna.

Trumpaður heimur II: Þegar orðræða verður að veru­leika

Trump hefur mótað heim þar sem sannfæring vegur þyngra en sannprófun og ímynd gengur fyrir innviðum. Slíkur heimur getur haldið velli lengi, svo framarlega sem trúverðugleikinn helst óskoraður. En þegar ethos brestur — þegar frásögnin hættir að virka og raunveruleikinn verður óumflýjanlegur — verður hrunið skyndilegt og ófyrirsjáanlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×