Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. júní 2026 10:31 Dua Lipa valdi tískuhúsið Chanel til að hanna brúðarkjól sinn. Instagram @dualipa Stórstjarnan og popp-prinsessan Dua Lipa giftist leikaranum Callum Turner á Sikiley 6. júní og var um að ræða stærsta stjörnubrúðkaup ársins. Mikil leynd hefur ríkt yfir öllu sem átti sér stað í brúðkaupinu og þá hafa tískuunnendur verið sérstaklega forvitnir að vita hverju Dua Lipa kaus að klæðast. Nú hefur það verið afhjúpað.
Dua Lipa er mikil tískudrottning og öll heitustu tískuhús heimsins hafa undanfarin ár keppst við að fá að klæða hana. Því var einstaklega eftirsóknarvert að fá að hanna brúðarkjólinn hennar og varla hægt að biðja um betri auglýsingu þar sem allir miðlar heimsins fjalla um þetta brúðkaup. View this post on Instagram A post shared by DUA LIPA (@dualipa) Franska tískuhúsið Chanel varð fyrir valinu en það er þekkt fyrir bæði tímaleysi og elegans. Kjólinn er einstaklega glæsilegur með hvítum fjöðrum og ísaumuðum kristöllum, með bert bak. Dua Lipa paraði kjólinn við sex metra bróderað slör og fjaðrir í hárinu. Matthieu Blazy listrænn stjórnandi Chanel hannaði kjólinn og er þetta fyrsti brúðarkjóll sem hann hannar eftir að hann tók við hjá tískuhúsinu. Kjóllinn var handgerður í París með hjálp ýmissa listamanna og tók sinn tíma, öllu heldur 1155 klukkutíma af vinnu með 480 þúsund litlum perlum og 25 þúsund fjöðrum. Til að fullkomna klæðaburðinn klæddist Dua Lipa svo sérsníðnum hvítum satín hælum frá Massaro en eiginmaðurinn valdi jakkaföt frá tískuhúsinu Louis Vuitton.
Tíska og hönnun Brúðkaup Hollywood Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira