Sport

Sara Rós og Nicolò heims­meistarar

Sindri Sverrisson skrifar
Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolò Barbizi glaðbeitt eftir að hafa orðið heimsmeistarar.
Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolò Barbizi glaðbeitt eftir að hafa orðið heimsmeistarar. Mynd/Jónína Guðbjörg

Sara Rós Jakobsdóttir og hinn ítalski Nicolò Barbizi skráðu sig í sögubækurnar um helgina þegar þau urðu heimsmeistarar í 10 dönsum, á WDO heimsmeistaramótinu.

Sara fagnaði sigrinum á heimavelli því þetta var í fyrsta sinn sem heimsmeistaramót í samkvæmisdönsum fer fram á Íslandi. Þau Barbizi hafa dansað saman í tíu ár og lengi stefnt að titlinum sem nú er orðinn að veruleika.

Mótið var haldið í Garðabæ og fór fram samhliða Iceland Dance Festival.

Aðeins einu sinni áður hefur Ísland eignast heimsmeistara í atvinnumannaflokki í 10 dönsum, þegar Adam Reeve og Karen Björgvinsdóttir unnu sama titil fyrir 23 árum. 

Sara Rós Jakobsdóttir og Nicolò Barbizi höfðu áður verið grátlega nálægt því að vinna titilinn en nú er hann í höfn.Mynd/Jónína Guðbjörg

Nicolò og Sara hafa búið og æft í Aarhus í Danmörku síðasta áratuginn og keppt fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum stórmótum víðs vegar um heiminn, með frábærum árangri. Áður en þau færðu sig yfir í atvinnumannaflokk á síðasta ári hlutu þau 19 Íslandsmeistaratitla í flokki fullorðinna og fóru tvisvar í úrslit á EM í 10 dönsum. 

Árið 2025 urðu þau heimsmeistarar í Showdance Ballroom í atvinnumannaflokki og höfnuðu jafnframt í öðru sæti á heimsmeistaramótinu í 10 dönsum, aðeins einu stigi frá gullverðlaunum, sem gerði sigurinn um helgina enn sætari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×