Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 20:01 Jürgen Klopp var ekkert að fela sína skoðun á drykkjarhléunum í miðjum leikjum á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Getty/ Felix Hörhager Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, er vægast sagt ekki hrifinn af drykkjarhléunum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og er eflaust ekki sá eini.
Þriggja mínútna hlé eru gerð í hvorum hálfleik á meðan leikmenn fá tækifæri til að drekka og um leið fá nokkur skilaboð frá þjálfurum sínum. FIFA segist vera með þessu að hugsa um heilsu leikmanna sem og að passa það að öll lið sitji við sama borð. Það blasir þó við þeim sem vilja sjá það að þetta er falin leið til að selja enn fleiri auglýsingar í kringum leikina. Það sést kannski best á því að dómarinn þarf oft að bíða með að setja leikinn aftur af stað þrátt fyrir að allir leikmenn séu klárir því auglýsingar þurfa að klárast áður en leikurinn er flautaður aftur af stað. Jürgen Klopp hefur gagnrýnt harðlega kælihléin sem notuð eru á þessu heimsmeistaramóti. „Yfirmenn sem sitja á loftkældum skrifstofum halda fótboltanum í gíslingu. Þessi hlé eru kynnt sem vernd fyrir velferð leikmanna, göfugt vopn gegn hitanum. Í raun og veru eru þau ekkert annað en gullbúr byggt fyrir styrktaraðila,“ sagði Klopp við þýsku sjónvarpsstöðina ZDF. „Þegar ég sá leikmenn standa aðgerðarlausir í kælihléum á meðan auglýsingahlé í sjónvarpi réðu takti leiksins gat ég ekki annað en spurt sjálfan mig: Hverjum þjónar heimsmeistaramótið í raun og veru?“ sagði Klopp og spurði. „Stuðningsmönnunum? Leikmönnunum? Eða auglýsendunum? Leikur á heimsmeistaramóti ætti að flæða eins og á. Þess í stað erum við að byggja stíflur í miðri ánni svo hægt sé að sýna auglýsingar?“ sagði Klopp. „Þetta er hættulegt fyrir anda leiksins. Fótboltinn var áður aðalatriðið en nú er hætta á að hann verði að bakgrunnstónlist fyrir auglýsingasýningu,“ sagði Klopp. View this post on Instagram A post shared by SOCCER SELECTED (@soccerselected)
HM 2026 í fótbolta FIFA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira