Körfubolti

Harden hand­tekinn fyrir ó­lög­legan vopna­burð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
 James Harden deilir hér við dómarann í leik með Cleveland Cavaliers í úrslitakeppninni.
 James Harden deilir hér við dómarann í leik með Cleveland Cavaliers í úrslitakeppninni. Getty/Jason Miller

James Harden, leikstjórnandi Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta, var handtekinn snemma á laugardagsmorgun í Houston og hefur verið ákærður fyrir minniháttar brot vegna ólöglegs vopnaburðar.

Samkvæmt dómsskjölum í Harris-sýslu var Harden tekinn í gæsluvarðhald klukkan 3:41 að morgni þegar skammbyssa sást í sæti bíls sem Harden á. Byssan var ekki í hulstri og var vel sýnileg, samkvæmt skjölunum.

Harden var færður til bókar klukkan 4:57 og síðar látinn laus gegn hundrað dollara tryggingu. Fyrirtaka í máli hans er áætluð 22. júní, samkvæmt vefsíðu dómstólsins.

„Cleveland Cavaliers er kunnugt um handtöku James Harden í morgun og er að afla frekari upplýsinga,“ sagði í yfirlýsingu frá Cavaliers. „Við erum í sambandi við James og umboðsmenn hans og munum fylgjast með framvindu mála. Að svo stöddu munum við ekki tjá okkur frekar.“

Harden gæti orðið samningslaus í lok mánaðarins. Hann hefur valrétt á samningi sínum upp á 42 milljónir dollara, 5,2 milljarða króna, sem hann þarf að taka ákvörðun um fyrir 29. júní, en aðeins 13,3 milljónir Bandaríkjadala eru tryggðar eða 1,6 milljarðar.

Búist hefur verið við því að Harden myndi afþakka valréttinn og skrifa undir nýjan margra ára samning til að vera áfram í Cleveland, en þangað fór hann í leikmannaskiptum í febrúar.

Hinn 36 ára gamli Harden var með 19,2 stig og 5,5 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni og hjálpaði Cavaliers að komast í úrslit Austurdeildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×