„Gegnumgangandi bongó um helgina“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. júní 2026 20:09 Þessir strákar skemmtu sér vel við fossinn í Elliðaárdal í dag. Vísir/Vilhelm Það stefnir í að veðurblíðan haldi áfram að leika við landann um helgina. Ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína á sunnan- og vestanverðu landinu heldur lætur hún einnig sjá sig norðan- og austanlands á morgun.
Það hefur vonandi enginn höfuðborgarbúi farið varhluta af blíðunni sem ríkti í dag á suðvesturhorninu. Hiti fór yfir tuttugu stigin víða á höfuðborgarsvæðinu og hæsti hiti sem mældist í dag mældist í Korpu og nam 21 stigi. Þetta er því annað árið í röð sem hitinn nær 20 stigum í höfuðborginni. Rúmlega 20 stig mældust bæði í Urriðaholti og á Kjalarnesi. 20,7 stig mældust sömuleiðis á Tálknafirði síðdegis í dag þannig að segja má að sólin hafi miðað lengdargráðuna í dag. Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur á Veðurstofunni segir ekki nóg með það að sólin haldi áfram að skína heldur skíni hún sömuleiðis á norður- og austanverðu landinu á morgun. Súld var yfir Austur- og Norðurlandi í dag. Hitinn náði vart tveggja stafa tölu þar í dag en annað verður á teningnum á morgun. Hitinn gæti farið upp undir tuttugu stigin og bjart verður um nær allt landið. „Það er gegnumgangandi bongó um helgina,“ segir hann.
Veður Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Fleiri fréttir Lægð suður af landinu og hæð yfir Grænlandi Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Snarpar vindkviður á Austfjörðum og sunnan við Vatnajökul Varað við hviðum á Austurlandi en blíðu í höfuðborginni Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira