Innlent

Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæ­braut og ó­geð­felldar lýsingar í dómsal

Bjarki Sigurðsson skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld.
Margrét Helga Erlingsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir

Bandaríkin og Íran eru sögð hafa komist að friðarsamkomulagi. Forsætisráðherra Pakistans tilkynnir þetta á samfélagsmiðlum en leiðtogar beggja vegna borðsins hafa enn ekki tjáð sig um yfirlýsinguna.

Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30.

Aðalmeðferð yfir Ming Ting Mancel, sem sætir ákæru fyrir að myrða dóttur sína í félagi við eiginmann sinn, hófst í dag. Við fjöllum um málið. 

Þeir sem héldu að það þyrfti bara að halda 60 kílómetra hraða til að ná grænu bylgjunni á Sæbraut höfðu ekki alveg rétt fyrir sér. Og þeir sem héldu að leyndarmálið væri 58 kílómetrar á klukkustund höfðu það ekki heldur.

Hópur Grindvíkinga kom saman á Austurvelli í hádeginu og mótmælti samráðsleysi stjórnvalda við bæjarbúa vegna bæjarins.

Icelandair hefur aflýst sex flugferðum í dag vegna manneklu. Enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu félagsins við flugmenn.

Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdal skömmu eftir klukkan eitt í dag. Töluverður viðbúnaður var á svæðinu en eldurinn kviknaði út frá einhverskonar raftæki inni í húsinu.

Allt er að verða tilbúið við Hvíta húsið í Bandaríkjunum þar sem UFC-bardagar fara fram á sunnudag í tilefni af 250 ára afmæli Bandaríkjanna og áttræðisafmæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta.

Söngleikurinn með Allt á hreinu er frumsýndur í Háskólabíói í kvöld. Hann er byggður á samnefndri mynd Stuðmanna frá árinu 1982 sem sló öll aðsóknarmet. Við verðum í beinni þaðan.

Spennan magnast fyrir einu glæsilegasta hnefaleikakvöldi ársins hér heima og þó víðar væri leitað sem fer fram í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×