Leik lokið: Víkingur-FH 2-5 | FH-konur á toppnum eftir markaveislu í Víkinni Þorsteinn Hjálmsson skrifar 13. júní 2026 15:58 FH-konur eru búnar að vinna sex leiki í röð í deildinni og eru komnar upp í toppsætið. Vísir/Guðmundur FH-konur eru komnar á toppinn í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir 5-2 sigur á heimakonum í Víkingi í dag. FH nýtti sér það að Blikar töpuðu fyrir Stjörnunni á sama tíma og Hafnarfjarðarkonur eru því með eins stigs forskot á toppnum. Fimm FH-konur skiptu mörkunum á milli sín eða þær Nia Raisa Christopher, Ingibjörg Magnúsdóttir, Deja Jaylyn Sandoval, Thelma Lóa Hermannsdóttir og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir. Freyja Stefánsdóttir skoraði bæði mörk Víkingsliðsins sem komst í 1-0 í leiknum. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld. Besta deild kvenna FH Víkingur Reykjavík