Finnur ekki fyrir sársauka Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. júní 2026 14:13 Maðurinn heimsótti Landspítalann og vildi láta rannsaka sig betur. Vísir/Vilhelm Þrír íslenskir bræður hafa greinst með meðfætt sársaukaleysi og er sjúkrasaga eins þeirra rakin í nýjasta Læknablaðinu. Þar kemur fram að sá hafi meðal annars bitið fremst af tungunni í æsku án þess að finna fyrir því og upplifi hvassa hluti meira eins og snertingu.
Í Læknablaðinu kemur fram að um sé að ræða meðfætt sársaukaleysi (e. congenital insensitivity to pain, CIP) og að það nái yfir ýmsa geysilega sjaldgæfa erfðasjúkdóma sem einkennast af vöntun á sársaukaskyni frá fæðingu, á meðan athygli veki að önnur starfsemi taugakerfisins er oftast, í stórum dráttum eðlileg. Þar segir að fyrst hafi verið greint frá bræðrunum þremur í Læknablaðinu árið 1978 og komið fram að foreldrarnir hafi verið einkennalausir. Þrjú af sex alsystkinum hafi verið með CIP og fjögur hálfsystkini voru einkennalaus. Yngsti bróðirinn, sá sem fjallað er um í Læknablaðinu er í dag 69 ára gamall og hafði samband við göngudeild taugalækninga á Landspítala fyrir fimm árum síðan. Hann lýsti því þar að hann væri yngstur þriggja bræðra, nú tæpri hálfri öld síðar velti hann fyrir sér erfðafræðilegri greiningu. Annar bróðir hans var látinn nokkrum árum áður, hinn enn á lífi en mikið hreyfihamlaður vegna langvarandi stoðkerfisvanda af völdum slysa á yngri árum. Bræðurnir þrír voru svalari en aðrir „Hann man takmarkað eftir uppvaxtarárunum hvað sjúkdómseinkenni varðar en lýsir því þó að hafa bitið fremst af tungunni án þess að finna fyrir því og brunnið á bakinu þegar hann sat við ofn. Bræðurnir þrír voru „svalari“ en aðrir, þoldu meira og voru áræðnari í leik sem börn. Þeir klifruðu hærra og hoppuðu úr meiri hæð. Eldri bræðurnir tveir urðu báðir fyrir endurteknum beinbrotum og meiðslum og okkar sjúklingur hefur alla tíð glímt við erfið liðslit og hreyfihömlun vegna þessa.“ Hann hafi sem barn reglulega farið til heimilislæknis sem hafi tæmt vökva úr hnjánum, vinstra hné hafi verið stíft með aðgerð þegar hann var um tvítugt og síðan endurskoðað tíu árum síðar og þá látið gróa saman. Hann hafi fengið gervilið í hægra hné um þrítugt og aftur rúmlega fimmtugur. Ökklar mannsins hafi aflagast með árunum og notar hann sérsmíðaða skó með innleggjum vegna þessa. Önnur einkenni hafi verið endurteknar sáramyndanir, og maðurinn notar gervitennur vegna tannskemmda á barnsaldri. Sjúklingur lauk háskólanámi, hefur gegnt margvíslegum stjórnunarstörfum og hefur tekið mikinn þátt í félagsstarfi í gegnum árin. Hann á einn son sem finnur sársauka, segir í Læknablaðinu. Finnur fyrir hita en ekki stungu „Sjúklingur lýsir því að hvassir hlutir séu meira eins og snerting og að hann hafi gríðarlega háan sársaukaþröskuld. Hann hefur lært að ákveðin hegðun geti leitt til lífeytaskaða og reynir þannig að passa að fara sér ekki að voða. Hann telur sig aftur á móti stundum finna sársauka, og þá sérstaklega á seinni árum. Hann lýsir verk í tengslum við beinsýkingu í ökkla, þar sem sárið var opið og náði inn að beini. Í sjúkraskránni kemur þó fram að hann afþakkaði verkjalyf og umbúðaskipti voru verkjalaus.“ Þá kemur fram að maðurinn hafi einnig talið sig hafa fundið fyrir sársauka í tengslum við lungnasegarek, bráða þvagteppu og nýrna-og skjóðabólgu. Í sjúkraskrám sé verkjum þó ekki lýst og verkjalyfjum ekki beitt. Nýlega hafi maðurinn fundið fyrir óljósum verkjum á vinstra mjaðmasvæði, þá getur hann fundið óþægindi þegar hann sér einhvern meiðast, til dæmis í kvikmynd og þá finnur maðurinn ekki sársauka við blóðsýnatöku. „Hvað varðar önnur taugaeinkenni þá hefur hann á síðustu árum fundið fyrir dofa og máttminnkun í höndum og fótum. Hann finnur kulda, fær hroll og klæðir sig betur þegar honum er kalt. Hann finnur hita og stillir heita vatnið þegar hann fer í sturtu. Hann finnur ekki til óþæginda vegna sólbruna. Hann svitnar eðlilega eins og aðrir. Sögutaka með tilliti til annarra einkenna frá ósjálfráða taugakerfinu er eðlileg. Lyktarskyn vantar. Bragðskyn er óljóst.“ Ný erfðabreyting Læknar mannsins sendu erfðamengi mannsins til Íslenskrar erfðagreiningar. Hún leiðir í ljós að maðurinn er með sjaldgæfar meinvaldandi breytingar í báðum samsætum, önnurhafi áður verið lýst í CIP en hin hafi einungis fundist í arfblendnu formi hjá aðeins 0,02 prósent Íslendinga og hafi ekki áður verið lýst í CIP. Fram kemur í Læknablaðinu að arfgerðin hafi einungis fundist hjá tveimur öðrum einstaklingum í lífssýnasamningi Íslenskrar erfðagreiningar, í bræðrum sjúklings sem einnig höfðu CIP. Þá segir að algengi CIP á heimsvísu sé óþekkt, áætlað algengi í Bretlandi sé einn á hverja milljón íbúa. Fram til 2007 hafi aðeins um þrjátíu tilfellum af CIP verið lýst í heiminum. CIP erfist víkjandi með sjaldgæfum undantekningum. „Fyrsta birtingamynd CIP getur verið þegar ungabarn bregst ekki við byltum eða gjöf bólusetninga. Sjálfskaði er dæmigerður með tilkomu tanna, til dæmis að tyggja eigin varir, tungu og fingur. CIP börn þykja einnig klaufsk þar sem þau læra ekki af sársauka og unglingar stunda gjarnan áhættuhegðun. Endurteknir áverkar, beinbrot og liðskemmdir leiða smám saman til flókins og langvarandi stoðkerfisvanda með tilheyrandi hreyfihömlun. Charcot-liðir eru dæmigerðir. CIP-einstaklingar eru einnig í aukinni hættu á snemmbærum dauða. Þeir skynja ekki mikilvægar sársaukaviðvaranir líkamans, svo sem alvarlegar sýkingar eða yfirvofandi hjartaáfall. Verkjalausar fæðingar eru þekktar hjá konum með CIP. Dæmigert er að CIP-einstaklingar læra að ákveðin hegðun getur valdið vefjaskaða og ber að forðast.⁵ Hornsteinar meðferðar eru snemmsgreining, fyrirbyggjandi fræðsla og einkennameðferð, svo sem bæklunaraðgerðir.“
Landspítalinn Mest lesið Sigmar í veikindaleyfi Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Tveir á vinnupalli sem hrundi Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fleiri fréttir Hefði þegið símtal frá Jóhannesi Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Sjá meira