Innlent

Olíu­mengun í Kópavogslæk

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Olían sást greinilega í læknum.
Olían sást greinilega í læknum. Samsett/Aðsend

Olíumengun í Kópavogslæk hefur vakið athygli íbúa í bænum. Einn þeirra segir það ekki í fyrsta skipti sem einhvers konar mengun berst í lækinn.

„Við hjónin göngum dalinn nærri daglega og þetta kemur fyrir af og til að maður verður var við að það er eitthvað sem fer í lækinn. Þetta var óvenju mikið og lykt sem fylgdi þessu, megn olíulykt,“ segir Hanna Fríða Jóhannsdóttir, íbúi í Kópavogi.

Hún birti myndir af olíumenguninni í læknum í Facebook-hóp íbúa hverfisins. Mengunin sást hvað best á brúnni vestan við Digranesveg en eftir því sem Hanna Fríða gekk lengra virtist mengunin leysast upp í læknum. Hún hyggst tilkynna mengunina til Kópavogsbæjar.

„Það er heilmikið lífríki í læknum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem eitthvað fer í lækinn,“ segir hún.

Í frétt Rúv kemur fram að Kópavogur hlaut 122 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu undir forystu Umhverfisstofnunar. Styrkinn átti að nýta til að koma vatnsgæðum Kópavogslækjar í betra efnafræðilegt ástand. 

Vert er að taka fram að verkefnið nær yfir sex ára tímabil en aðeins eitt og hálft ár er liðið frá upphafi þess. Af 122 milljónunum hafa 28 milljónir króna verið nýttar.

Hvítur lækur

Á árum áður hefur töluvert verið fjallað um Kópavogslæk og mengun sem leitar út í hann. 

Árið 2011 mældist saurkólígerlamengun langt yfir ásættanlegum mörkum, nokkrum mánuðum eftir að Kópavogsbær ákvað að gera verulegt átak í því að finna rangtengingar skólplagna. Umræddar tengingar eru þegar skólplagnirnar eru tengdar inn á regnvatnslagnir og fer skólpið óhreinsað í lækina í stað þess að fara í skólphreinsistöð.

Þá vakti það einnig töluverða athygli árið 2013 þegar lækurinn varð hvítur vegna mengunar og árið 2018 þegar málning fór í niðurfall á lóð Málningar hf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×